Frjáls verslun - 01.08.1973, Page 67
þar scgðu allar breytingar á
ferðum strætisvagna mjög til
sín í sölunni eins og þegar
stöðvar sumra þeirra voru
fluttar af torginu suður í
Lækjargötu eða á Kalkofnsveg.
í Austurstrætinu er ástandið
allt annað og þar taldi Sveinxi
kjörið að reka sérverzlun
eins og með myndavélar
enda vildu menn leita þangað,
þegar keyþtir væru dýrir og
vandaðir gripir en ekki í
einstakar deildir verzlunar-
miðstöðvanna. Sveinn sagði
að miðbærinn héldi fullu
gildi, þó að sumir vildu segja
að hann væri að deyja. Hann
benti á að fjöldi manns starf-
aði í hinum ýmsu fyrirtækjum
og stofnunum, sem þar hafa
aðsetur og í þær ætti allur
almenningur erindi. Mikið líf
væri jafnan í kringum höfn-
ina, sem er í næsta nágrenni.
Þó mætti segja, að of margir
lengdarmetrar væru komnir
undir bankabyggingar í Aust-
urstræti og nærliggjandi göt-
um og hefðu þær sumar hverj-
ar komið í stað verzlana, sem
mjög líflegt var yfir fyrr á ár-
um. Sveinn sagði það sína skoðr
un, að gjarnan mættu vera
fleiri verzlanir og færri bankar
handan götunnar í Austur-
stræti. Ekki sagðist Sveinngeta
nefnt neinar tölur um meðal-
leigu á verzlunarhúsnæði í
Austurstræti en sagðist hafa
heyrt að alminnsta verzlunar-
pláss i götunni væri leigt á
35 þús. á mánuði Sagði hann
að litlu verzlanirnar yrðu að
borga tiltöiulega langhæstu
leiguna.
ÞÆGINDI AF NÁLÆGÐ
BANKANNA
Varðandi sinn eigin rekstur
sagði Sveinn mikið hagræði af
því að vera í Austurstræti
vegna nálægðar bankanna,
tolls og fleiri stofnana, sem
fyrirtæki hans þyrfti að eiga
dagleg viðskipti við. Af þessu
sköpuðust mikil þægindi.
SAAB-umboðið, sem Sveinn
er eigandi að, hefur nú aðal-
stöðvar sínar inni í Skeifunni
og hefur sú tilhögun reynzt
prýðilega þrátt fyrir ótta við
að fara svo langt frá miðbæn-
um á sínum tíma. Sá ótti hefði
hins vegar reynzt ástæðulaust
og ætti jafn plássfrek starf-
semi og bílasala tvímælalaust
vel heima á slikum stað sem
iðnaðarsvæðið í Skeifunni er.
Nú líður senn að því að rekstur
af því tagi fari inn fyrir EU-
iðaár. Til greina hefur komið
að opna söluskrifstofu fyrir
bílaumboðið niðri í miðbænum
en við nánari athugun var tal-
ið að það myndi ekki borga
sig, því að viðskipavinurinn
myndi aldrei fá allar þær upp-
lýsingar, sem hann teldi sig
þurfa á að halda með því að
skoða bíl inni á gólfi og hlýða
á ræðu sölumannsins. Sagði
Sveinn að kaup á nýjum bíl
væru almennt ekki afráðin
hér á landi fyrr en eftir 10
samtöl við sölumennina.
GLERÞAK?
Um breytingarnar, sem nú
hafa orðið í Austurstræti, sagði
Sveinn, að hann teldi þær
mjög jákvæðar og í anda
þeirrar stefnu, sem hann og
meðeígandi hans í Austur-
stræti 6 hefðu stundum rætt
sín á milli, að í framtíðinni
yrði sem sagt sett glerþak yfir
allt Austurstrætið.
—
í— •
Vegfarendur hafa kunnað vel að meta þá tilbreytingu og friðsæld,
sem ríkir í Austurstræti og Pósthússtræti eftir að Austurstræti
varð göngugata.
07
FV 8 1973