Frjáls verslun - 01.08.1973, Blaðsíða 82
heita Drangar. Þessi tröli
standa þar í svonefndri Dranga-
vík nálægt Kollafjarðarnesi.
Af tröllskessunni, sem mok-
aði Húnaflóamegin, er það aö
segja, að hún varð naumt fyrir
og gætti ekki að sér, er birta
fór. Hún stökk þá norður og
yfir Steingrímsfjörð og stað-
næmdist hjá klettabelti einu
fyrir norðan fjörðinn, sem Mal-
arhorn heitir. Þegar sólin skein
á hana, varð hún svo reið, að
hún rak rekuna í grellsköpum
í Hornið svo fast, að úr þvi
sprakk ey sú, sem enn er á
Steingrímsfirði og Grímsey
heitir. Er það eina stóreyjan,
sem tröllkonu þessari tókst að
mynda. Síðan hefur enginn ráð-
ist í að búa til eyjar á Breiða-
firði eða Húnaflóa, né heldur
reynt að moka sundur landið
milli meginlandsins og Vest-
fjarða.
Þannig eru tröllasögurnar af
Ströndum, tilþrifamiklar,
myndrænar og tengdar nútíð-
inni. Nátttröllin og ummerki
eftir þau blasa við ferðamönn-
um, sem leið sina leggja um
þessar tröllabyggðir, þar sem
fólki fækkar óðum.
ef þeir hjá Nesco hf. kyqnu ekki að spara í flutnings-
kostnaði. Öll Grundig tæki koma til landsins með flugvélum
ISCARGO. Það reynist ódýrasti flutningsmátinn.
Ýmsir aðrir innflytjendur gætu sparað á sama hátt og lækkað
vöruverð, ef þeir athuguðu sinn gang. Ert þú einn þeirra?
17 REYKJAVÍK SÍMI 10542 TELEX 2105
SÉRGREIN OKKAR: VÖRUFLUTNINGAR
82
FV 8 1973