Frjáls verslun - 01.02.1974, Blaðsíða 27
og sjá um framreiðslu. Þær telj-
ast víst varla mjög léttklæddar
á nútímamælikvarða, en hefðu
ef til vill talizt það fyrir 20 ár-
um. Þær eru í búningi, sem líkist
sundbol, eru með eins konar
kanínueyru og kanínuskott,
„manséttur“ um úlnliðina, harð-
an flibba og virðulega slaufu.
Allt í stíl við merki Playboy,
kanínuna.
Kvikmyndagerð Playboy var
aðeins nefnd hér að framan, og
má í því sambandi nefna, að fyr-
irtækið stóð ásamt Universal-
kvikmyndafélaginu að gerð
kvikmyndar eftir bókinni
„Nakti apinn“ og í samvinnu við
kvikmyndahöfundinn Roman
Polansky framleiddi Playboy
kvikmyndina Macbeth. Báðar
þessar myndir eru nýlegar og
hafa ekki enn verið sýndar hér
á landi.
Playboy veldið virðist vera að
undirbúa nýja landvinninga.
Fram að þessu hefur því nægt
að reka klúbba og spilavíti í
tveimur löndum utan Bandaríkj-
anna, — en nú er verið að vinna
að áætlun um að hasla Playboy
völl í Japan, og þykir þar að at-
huguðu máli vera góður mark-
aður fyrir hugmyndir og þjón-
ustu fyrirtækisins.
Hugh Marston Hefner, er nú
47 ára, og hefur svo sannarlega
hitt naglann á höfuðið, þegar
hann stofnaði Playboy. Eigin
hlutur hans í eignum fyrirtækis-
ins er nú metinn á um fimm
milljarða íslenzkra króna.
VÆNGIR HF
Fljúga áætlunarferðir og sérferðir
samkvæmt óskum yðar
ÁÆTLUNARSTAÐIR:
Akranes
Bíldudalur
Blönduós
Borgames
Búðardalur
Flateyri
Gjögur
Hólmavík
Hvammstangi
Mývatn
Reykhólar
Rif
Siglufjörður
Stykkishólmur
Verzlunar- og kaupsýslumenn!
Hagkvæmar hópferðir 9—19 manna.
Útsýnisferðir fyrir erlenda viðskiptamenn
og söluferðir til flestra staða landsins.
VÆNGIR H.F.,
Reykjavíkurflugvelli,
sími 26060.
Frjáls verzlun
íþróttablaðið
Sjávarfréttir
*
Eru gefin út af
Frjálsu framtaki hf.
*
Gerizt áskrifendur
sími 82300-82302
FV 2 1974
27