Frjáls verslun - 01.02.1974, Blaðsíða 82
Kaffibrennsla Akureyrar hf.
Kaffibrennsla Akureyrar var
stofnuð árið 1929. Árið 1944
tóku Kaupfélag Eyfirðinga og
Samband ísl. samvinnufélaga
við rekstrinum. Framleiðslu-
aukning fyrsta árið eftir að sam-
vinnufélögin tóku við rekstrin-
um varð yfir 50%, og hefur
framleiðslan aukizt æ síðan.
Kaffibrennslan flutti í nýtt og
fullkomið húsnæði árið 1960.
Árið 1972 fór fram algjör end-
urnýjun á vélarkosti verksmiðj-
unnar til aukinnar hagræðingar
og til að tryggja áframhaldandi
gæði framleiðslunnar. Voru vél-
arnar keyptar frá Þýzkalandi og
hafa reynzt í alla staði vel.
Framleiðsla kaffibrennslunn-
ar á árinu 1972 nam 390 tonn-
um af kaffi, sem allt var fram-
leitt úr úrvalshráefni, Ríó- og
Santoskaffi, innfluttu frá Braz-
ilíu.
Verksmiðjustjóri: Guðmund-
ur Guðlaugsson.
Efnaverksmiðjan Sjbín
Árið 1932 var hafizt handa
um sápugerð í skúrbyggingu, á-
fastri við Smjörlíkisgerð KEA
í Grófargili. Lagði SÍS fram
hálfan stofnkostnað á móti KEA.
Var það upphaf Efnaverksmiðj-
unnar Sjafnar, og er hún enn
sameign þessara tveggja aðila.
Árið 1950 eyðilögðust vélar
verksmiðjunnar og aðalhús í
bruna. Var strax hafizt handa
um endurbyggingu, og árið eft-
ir hóf Sjöfn að starfa á ný í
rúmgóðu húsnæði með nýtízku
vélabúnaði.
Helztu vöruflokkar í hreinlæt-
isvörum eru: handsápur, þvotta-
duft, þvottalögur, uppþvotta-
efni, shampo, tannkrem, hrein-
gerningarlögur og handþvotta-
krem.
Málningarframleiðsla á veg-
um Sjafnar hófst 1958. Fram-
leiðslan hefur gengið mjög vel
og er sívaxandi að magni og
fjölbreytni. Helztu vöruflokkar
eru: Polytex plastmálning, Úti-
tex plastmálning, Rex skipa-
málning, Rex lökk, Gólftex, Rex
lím, óskalitir o. m. fl.
Haustið 1972 hófst framleiðsla
á svampi, sem notaður er í rúm-
dýnur og til bólstrunar hús-
gagna. Hefur þessi framleiðsla
gengið vel.
Um 40 manns vinna nú að
framleiðslunni, sem nam 692
tonnum af hreinlætisvörum og
870 tonnum of málningarvörum,
eða 1562 tonn samtals á árinu
1972.
Verksmiðjustjóri: Aðalsteinn
Jónsson.
82
FV 2 1974