Frjáls verslun - 01.02.1974, Side 90
okkur, að lyftararnir væru fram-
leiddir í Englandi, V-Þýzkalandi
og Frakklandi og væri boðið upp
á gaslyftara auk benzín, diesel
og rafmagnslyftara af stærðinni
frá 600 kg upp í 25 lesta lyfti-
getu. Mest er af benzín og raf-
magnslyfturum, en gaslyftar-
ar eru mjög að ryðja sér braut
vegna þess að þeir eru ódýrari
og byrjað er að framleiða þá í
fjöldaframleiðslu eins og bíla,
en iyftarar væru annars yfirleitt
framleiddir aðeins eftir pöntun-
um. Hægt er að fá allar stærð-
ir með öllum hugsanlegum
aukabúnaði. Verð miðað við síð-
asta gengi er sem hér segir.
Gaslyftarar, 1.65 tonna lyfti-
geta, um 1250 þúsund.
2ja tonna diesellyftari um 2,2
milljónir.
2ja tonna benzínlyftari um 1.8
milljón.
Veltibúnaður um 90° halla á
hvorn veg kostar um 180 þús-
und. Viðgerðarþjónustu annast
Vélsmiðjan Steinar og eru
varahlutir pantaðir beint frá
verksmiðjunum í Evrópu.
STEINBOCK
Pétur O. Nikulásson, umboðs
og heildverzlun hefur umboð
fyrir v-þýzku lyftarana Stein-
bock frá Steinbock G.M.B.H.-
verksmiðjunum í Moosburg, en
það er gamalgróið og heims-
þekkt fyrirtæki á sínu sviði og
var stofnað árið 1922. Pétur O.
Nikulásson tjáði okkur, að fyr-
irtækið hefði fengið umboð árið
1962 og á þeim tíma flutt inn
með því sem nú er í pöntun, 172
Steinbocklyftara. Hægt er að fá
rafmagnslyftara, benzín, diesel
og gaslyftara. Venjulegur auka-
búnaður er að sögn Péturs, ör-
yggisgrind, vinnuljós, vökva-
stýri og sjálfskipting.
Hægt er að fá möstur við allra
hæfi, eftir aðstæðum á hverjum
stað. Útbúnaður notaður í frysti-
húsum og fiskvinnslustöðvum
er einkum veltibúnaður og salt-
skófla. Mikill fjöldi Steinbock-
lyftara er í notkun í fiskvinnslu-
stöðvum, en það krefst góðrar
varahlutaþjónustu og hefur fyr-
irtækið byggt þá þjónustu upp.
Fyrir tveim árum var Steinbock-
þjónustan stofnuð og veitir Guð-
laugur Helgason vélstjóri henni
forstöðu og er þar séð um við-
hald og viðgerðir á þessum lyft-
urum. Einnig er boðið upp á
fyrirbyggjandi viðhald með
reglulegu eftirliti. Er fyrirtækið
nú að reisa verkstæðishús í
Kópavogi, sem mun bæta mjög
viðgerðarþjónustuna.
Sem dæmi um verð tók Pétur
rafmagnslyftara með 1200 kg
lyftigetu, 3.50 m lyftihæð, með
öryggisgrind, Ijósum, hleðslu-
mæli, rafhlöðu og hleðslutæki.
Slikur lyftari með öllum kostn-
aði og söluskatti kostar um 890
þúsund krónur.
HYSTER
Vélsmiðjan Hamar hefur um-
boð fyrir Hyster lyftara frá sam-
nefndu fjölþjóðafyrirtæki. Móð-
urfyrirtækið er bandarískt, en
hefur reist verksmiðjur víða um
heim og er eitt stærsta fyrirtæki
sinnar tegundar í heiminum.
Eru framleiddir lyftarar með
allt frá 1 lesta lyftigetu upp í 20
lestir. Hamar fékk umboðið
1968 og munu nú vera í notkun
hér á landi milli 70—80 Hyster-
lyftarar. Fyrirtækið framleiðir
gas, benzín, rafmagns og diesel-
lyftara að sögn Júlíusar Hall-
dórssonar sölumanns. Hamar sér
um varahluta- og viðgerðarþjón-
ustu fyrir aðra lyftara. Hægt er
að fá alla hugsanlega aukahluti
veltibúnað, skóflur, ýtur,-
klemmur og ýmsar gálgahæðir
fyrir mismunandi lyftihæðir.
Þá er boðið upp á ýmsan sérbún-
að í sambandi við gáma og nota
t. d. bæði Eimskip og Rikisskip
Hysterlyftara um borð í skip-
um og í landi. Verð á diesellyft-
ara með 2 tonna lyftigetu er um
1,3 milljónir með venjulegum
búnaði og verð á rafmagnslyft-
urum er frá tæpri milljón og
upp úr eftir stærðum.
DESTA
Ástún s.f. er nýtt fyrirtæki,
stofnað á s.l. ári. Það hefur nú
fengið umboð fyrir Desta-lyftara
frá tékkneska fyrirtækinu
Strojexport, en það fyrir-
tæki er eitt stærsta fyrirtæki
landsins og framleiðir alls konar
vinnuvélar og tæki. 10 lyftarar
af þessari gerð eru komnir til
landsins að sögn Bjarna Ólafs-
sonar sölumanns. Destagaffal-
lyftarar eru seldir til yfir 30
landa og eru helztu kaupendur,
V-Þýzkaland, Danmörk, Sví-
þjóð, Bretland og Finnland. Á
s.l. ári voru seldir 2000 Desta-
lyftarar til landa í V-Evrópu, en
framleiðslan á hverjum tíma er
miðuð við ströngustu kröfur
kaupenda. Að sögn Bjarna er
verðið mjög hagstætt og að-
gengilegt og fjölmargir auka-
hlutir innifaldir í því. Lyftigeta
er frá 1300 kg upp í 3200 kg og
verðið frá 650 þúsund upp í 1
milljón og 60 þúsund, Innifalið
90
FV 2 1974