Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1974, Blaðsíða 11

Frjáls verslun - 01.07.1974, Blaðsíða 11
Spariskírteini ríkissjóð's hafa reynst honum góð hjálparhella við peninga- öflun, en erfiðara er við málið að eiga, þegar smám saman þarf að fara að endurgreiða þau. Óinn- leyst spariskírteini ríkis- sjóðs frá síðustu 10 árum nema nú tæpum tveimur milljörðum króna, sam- kvæmt krónutölu skír- teinanna sjálfra, en heild- arinnlausnarverð skírtein- anna með vöxtum og vísi- tölu nú um mitt ár 1974 er aftur á móti um 5,7 milljarðar króna. Ætlunin mun að velta þessum skuldum áfram með út- gáfu nýrra spariskírteina. — ® — Erfitt hefur reynst að fá úr því skorið hversu mikið fé fór í þróunar- sýninguna miklu í Laug- ardalshöllinni, en víst er, að þær ríkisstofnanir og ráðuneyti, sem þátt tóku í þessari þjóðhátíðarsýn- ingu, hafa varið til þess geysilegum fjármunum og margir liafa haft góð- an skilding fyrir að ann- ast undirbúning og upp- setningu sýningardeilda. Þeir, sem gleggst þykjast vita um 'þessi mál, segja, að sýning þessi, sem nefnd var þróun 874-1974, hæri nafn með rentu, ef hún væri nefnd SÓUN 74. — © — Heyrst hefur að Magn- ús Kjartansson sjái mjög eftir iðnaðarráðherraem- bættinu, ekki sízt þar sem hann geti nú ekki lengur notfært sér lúxusbústað Landsvirkjunar við Búr- fell og fleira, sem embætt- inu hafi fylgt. En meðal þeirra, sem mest sjá eftir Magnúsi úr stólnmn, munu vera framleiðendur rafala í Austantjaldslönd- um, einkum þó forráða- menn Skodaverksmiðj- anna, sem gátu í ráðherra- tíð hans selt tækjabúnað fyrir hundruð milljóna til íslenzkra orkuvera. Nú er ekki lengur hægt að hag- ræða hlutunum og þiggja einungis austantjaldsvéi- ar, án tillits til þess, hvort þær eru hagstæðari en aðrar. Heyrzt hefur tii dæmis, að í Lagarfljóts- virkjun hafi verið keypt- ar vélar að austan, sem haíi verið eitthvað ódýr- ari í innkaupi en aðrar. Aftur á móti séu þær aí- greiddar á mun lengri ííma en aðrar vélasam- stæður, sem boðizt hafi, þannig að tap, sem verð- ur vegna þess, hve seint raforkuframleiðslan getur hafist í þessari nýju virkjun, sé margfalt meira en sem nemur mis- muninum á austantjalds- tilbcðinu og hæsta tilboð- inu, sem var frá vest- rænu ríki. Menn liafa verið að reyna að finna skýringar á því, hvers vegna Lúð- vík Jósefsson hvarf til laxveiða, þegar viðræður stóðu yfir milli gömlu stjórnarflokkanna ov AI- þýðjuflokksins til þess að reyna að lengja líf vinstri stjórnarinnar. — Sumir segja, að þar hafi Lúðvík verið illa fjarri góðu gamni, aðrir segja, að hann eigi nú auðveldara með að skella skuldinni á aðra, þegar um það verður rætt, hver har ábyrgð á því að ekki náð- ist samkomulag, — og ein skýringin og kannski sú Iíklegasta er sú, að hann hafi verið að rýma sæti í viðræðunefndinni til þess að Svava Jakobsdóttir fengi að komast að og verða í forsvari fyrir AI- þýðubandalagið, því að stefnt sé að bví að hún taki við forystu flokksins, þegar Ragnar Arnalds láti af formannsstörfunum í haust. Margir hafa verið ó- ánægðir með það nýja fyrirkomulag, sem tíðkazt hefur nú um nokkurt skeið varðandi greiðslur orlofsfjár, og alla þá skrif- finnsku, sem því fylgir. Um leið og allt þetta pappírsfargan jókst og tölvur fóru að vinna úr gögnunum, hafa orðið alls konar mistök og vand- ræði, sem komið hafa illa við marga þá, sem þurfa að greiða orlofsfé. Nöfn eru nú ekki notuð, heldur eingöngu nafnnúmer og hvað eftir annað hefur komið fyrir, að nafnnúm- er hafa verið færð rangt inn á eyðublöðin og um leið inn í tölvukerfið, og hafa þá ýmsir einstakling- ar, sem ekki hafa átt rétt á orlofsfé jafnvel fengið það sent, á sínu eigin nafnnúmeri. Enginn veit, hvaða stafur hefur verið rangur í númerinu, svo að sá, sem átti að fá pening- ana finnst sjaldan eða alls ekki. Hitt er svo kannski enn alvarlegra mál,og það er, að orlofsféð, sem Póstur og sími innheimtir, bland- ast fjárreiðum stofnunar- innar og er því notað jöfnum höndum sem rekstrarfé og til að standa undir fjárfestingum. Er þetta í rauninni ófært, ekki sízt, þegar vitað er, að mikið tap er á rekstri þessarar ríkisstofnunar og gæti jafnvel svo farið, að engir peningar yrðu til þegar greiða ætti eigend- um orlofsfjárins það. Ætti því að gera ráðstaf- anir til þess að aðskilja þessar fjárreiður póst- gíróstofunnnar og ann- arra deilda Pósts og síma algjörlega. FV 7 1974 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.