Frjáls verslun - 01.07.1974, Blaðsíða 13
Svart útlit
Þjóðartekjur Islendinga munu að
líkindum standa i stað á árinu,
eða jafnvel minnka
Ef útlitið varðandi afkomu
þjóðarinnar hefur einhvern
tíma verið svart, þá er það nú.
Samkvæmt upplýsingum helztu
efnahagssérfræðinga landsins
má gera ráð fyrir, að þjóðar-
tekjur standi í stað miðað við
krónutölu á þessu ári, — og ef
tekið er tillit til raunverulegs
verðgildis muni þær minnka.
Ef litið er á þjóðarframleiðsi-
una má gera ráð fyrir, að hún
aukist um fjögur prósent á ár-
inu, — ef ekki verður truflun á
atvinnurekstri í haust vegna
verkfalla, en ef til vill er of
mikil bjartsýni að reikna með
því, að ekki komi tii einhverra
af þeim verkföllum, sem löng-
um hafa verið árviss undir lok
ársins. En þessi spá um fjögur
prósent aukningu þjóðartekna
er sem sagt miðuð við jafnvægi
í atvinnumálunum, það sem eft-
ir er ársins. Til samanburðar
má geta þess, að á síðustu ár-
um hefur aukning þjóðarfram-
leiðslu orðið mest árið 1971, en
þá kcmst hún upp í 10,1%. Að
vísu verður að taka tillit til
þess, að á árunum þar næst á
undan var hagkerfi þjóðarinnar
smám saman að vinna sig upp
úr þeim öldudal, sem það komst
í á erfiðleikaárunum 1966 til
1968.
LÍTIL FRAMLEIÐSLU-
AUKNING EINSTAKRA
ATVINNUGREINA
Þegar könnuð er afkoma ein-
stakra atvinnugreina lands-
manna kemur í ljós, að umsvif
í verzlun og þjónustugreinum
hafa aukizt það sem af er ár-
inu um milli fjögur og fimm
prósent, og telja sérfræðingar
að svipuð þróun verði áfram.
Svo sem kunnugt er, hefur mik-
il þensla verið í byggingariðn-
aði síðast iiðin tvö ár, og er tal-
ið, að afkastageta þeirrar at-
vinnugreinar hafi verið sem
næst fullnýtt á síðastliðnu ári,
cg augljóst er, að undanfarið
hefur eftirspurnin eftir vinnu-
aíli til byggingarstarfsemi ver-
ið meiri en þessi grein getur
annað. Mun því ekki rétt að
gera ráð íyrir nema um 5%
framleiðsluaukningu í bygg-
mgariðnaðinum á árinu.
SAMDRÁTTUR í IÐNAÐI
Varðandi iðnaðarframleiðsl-
una almennt er búizt við, að
aukning hennar verði minni á
þessu ári en í fyrra. Ekki er t.il
dæmis um neina verulega aukn-
Vart er búizt við meira en 4% aukningu í sjávarútvegsframleiðslunni.
13
FV 7 1974