Frjáls verslun - 01.07.1974, Blaðsíða 75
Hitaveitumál
Frumathugun vegna Þorlákshafnar,
Stokkseyrar og Eyrarbakka
í framhaldi af jarðhitarann-
sóknum í Ölfusi og Flóa, sem
unnið hefur verið að síðustu
árin, hefur Orkustofnun látið
gera frumathug.un á nýtingu
jarðhita til húsahitunar á Þor-
lákshöfn, Eyrarbakka og
Stokkseyri. Skýrslan er unnin
í samvinnu jarðhitadeildar
Orkustofnunar og Verkfræði-
stofunnar Fjarhitunar. Af hálfu
jarðhitadeildar ,unnu að henni
l>eir Karl Ragnars og Kristján
Sæmundsson, en af hálfu Fjar-
hitunar heir Karl Ómar Jóns-
son og Ólafur Elíasson.
í byrjun voru ýmsar leiðir
athugaðar lauslega, svo sem
lögn frá borholum ofan við
Hveragerði, annaðhvort um Sel-
foss eða yfir Ölfusá hjá Kald-
aðarnesi eða yfir Ölfusárós.
Einnig var athuguð hagkvæmni
bess að leiða vatn í öll þrjú
kauptúnin frá Bollastöðum með
lögn yfir Ölfusárós. Engin af
þessum leiðum virtist við laus-
lega athugun geta verið hag-
kvæm. Kemur þar hvort
tveggja til, að um er að ræða
langar vegalengdir og að leggja
þarf aðfærsluæðar yfir Ölfusá,
en það er tæpast hugsanlegt á
annan hátt en á brú eða með
því að grafa lögnina ofan í ár-
botninn. Yrði slík framkvæmd
mjög kostnaðarsöm, og getur
svo lítill markaður, sem hér er
um að ræða, ekki borið slíkan
kostnað. Var því horfið frá að
athuga þær nánar, en þeir kost-
ir einir teknir fyrir, sem virt-
ust geta verið haekvæmir, en
þar er um að ræða aðfærslu
til Stokkseyrar og Eyrarbakka
frá Selfossi eða Bollastöðum og
aðfærslur til Þorlákshafnar frá
borholum milli Hb'ðarenda og
Hlíðardalsskóla í Ölfusi.
.TARÐHITI og boranir
Öflun á heitu vatni fyrir Þor-
lákshöfn, Eyrarbakka, Stokks-
eyri, Selfoss og bæi gæti verið
á brem stöðum, b. e. á milli
Hlíðardals og Hlíðarenda í
Ölfusi fyrir Þorlákshöfn, í Þor-
leifskoti fyrir stækkun Hita-
veitu Selfoss, Eyrarbakka,
Stokkseyri og bæi og á Bolla-
stöðum fyrir Eyrarbakka,
Stokkseyri og bæi, að því er
segir í skýrslu Orkustofnunar
og Fjarhitunar h.f.
Á öllum þessum stöðum þarf
að bora eftir vatninu, en hita-
stig, efnainnihald vatnsins og
afköst borhola gætu orðið mis-
jöfn eftir svæðunum.
Við Hlíðardal og Hlíðarenda
er hitastig 150°C. Ekki er fylli-
lega ljóst, hvort hægt er að
dæla vatninu úr holunum með
djúpdælum, en að öðrum kosti
yrðu holurnar að gjósa, og er
hugsanlegt að nýta varmann úr
gufunni með íblöndun á köldu
vatni. Vatnið er á mörkum þess
að vera hæft til beinnar notk-
unar í hitaveitu, en að öðrum
kosti mætti nota varmaskipta,
annaðhvort í dælustöð eða í
hverju húsi fyrir sig.
ÞORLÁKSHÖFN
Vatnsþörf Þorlákshafnar er
talin 22 1/sek eins og er, en
reiknað er með að það magn
fáist úr einni holu. í skýrslunni
segir, að áður en vinnslusvæð-
ið sé endanlega ákveðið, þurfi
að bora reynsluholu með
Wabcobor sem næst Þorláks-
höfn, t. d. í nánd við vegamót-
in. Vinnsluhola yrði síðan bor-
uð með gufubor, annaðhvort
þar hjá eða við Hlíðardal, en
Wabco holan gæti verið vara-
hola fyrir gufuborsholuna í
rekstri hitaveitunnar. Kostnað-
ur við þessar boranir er áætl-
aður 5,5 Mkr. fyrir 1000 m
djúpa Wabco holu og 7,5 Mkr.
fyrir 1800 m djúpa gufubors-
holu.
SELFOSS
Hitaveita Selfoss fær nú
heitt vatn frá Þorleifskoti.
Vatnsvinnslan er þar nú um
70-80 1/sek að vetri til, og er
svæðið talið fullnýtt miðað við
frágang á þeim holum, sem
fyrir eru. Til þess að auka
vatnsvinnsluna þarf nýjar hol-
ur.
Samtímis aukinni vatns-
vinnslu fyrir hitaveitu Selfoss
gæti verið hagkvæmt að afla
heits vatns jafnframt fyrir ná-
grannabyggðirnar. Samanlögð
vatnsþörf Eyrarbakka og
Stokkseyrar og þeirra bæja,
sem eru á leiðinni þangað nið-
ureftir, er um 30 1/sek í dag,
þannig er heildarvatnsþörfin
nú um 100-110 1/sek. Ein 1800
m djúp gufuborshola ætti að
nægja til öflunar þessa viðbót-
arvatns og aukinna þarfa Hita-
veitu Selfoss á næstu árum. Sú
hola yrði fóðruð dýpra niður
og vatnið tekið inn á meira
dýpi en í þeim holum, sem fyr-
ir eru, þannig að þær haldi sínu.
Reiknað er með allt að 90°C
heitu vatni, sem dælt yrði með
djúpdælum og nota mætti beint
í hitaveitu eins og verið hefur
á Selfossi. Ekki er þörf á bor-
un neinna rannsóknarhola, og
er áætlað að ein gufuborshola
kosti 7,5 Mkr.
JARÐHITASVÆÐI VIÐ
BOLLASTAÐI
Viðnámsmælingar benda til
að álitlegt jarðhitasvæði sé við
Bollastaði austan Selfoss. Ef
borun einnar rannsóknarholu
staðfestir þetta, mætti afla
vatns á þessum stað fyrir hita-
veitu á Eyrarbakka og Stokks-
eyri og til mun fleiri bæja, sem
yrðu á þeirri leið. Áætlað er, að
vatnshitinn sé svipaður og við
Selfoss, 80-90°C, og að vatnið
sé nothæft beint til hitaveitu.
Reiknað er með, að vatninu sé
dælt með djúpdælum. Rann-
sóknarholan er áætluð 200-300
m djúp og yrði væntanlega bor-
uð með Mayhew bor. Kostnað-
ur við hana yrði um 2 Mki.
Vinnsluholur yrðu síðan borað-
ar með Wabco bor, 2 holur 1000
m djúpar. Kostnaður við þær er
áætlaður um 11 Mkr.
FV 7 1974
75