Frjáls verslun - 01.07.1974, Blaðsíða 83
lendis frá og auka möguleika á
snyrtilegri og gallalausri fram-
leiðslu.
Vélarnar eru keyptar frá
Bandaríkjunum og Noregi og
var verð þeirra 5 millj. Véla-
kostur Glerborgar er nú lyfta,
glerskurðarborð, límblöndunar-
vél og þvottavél.
Verð á glæru gleri er
3200-4500 krónur fermeter-
inn, litað og munstrað gler
er yfirleitt 10-15% dýrara.
Aígreiðslutími glersins er 3-4
vikur eftir að breytingarnar
urðu, þar sem hann var áður
6-8 vikur.
Á s.l. ári var framleiðslan
gleri, en áætlða er að hún verði
á þessu ári 25-30000 fermetrar.
Að lokum sagði Bjarni, að
sala glers væri mjög árstíða-
bundin og er mest sala seinni
hluta árs, en janúar-maí er
daufasti tíminn.
19000 fermetrar af einangrunar-
Verk hf:
Verksmiðjuframleidd einingahús
gefa kosf á allt að 30% lægri
byggingarkostnaði
Sérhverjum húsbyggjenda
hlýtur að vera það kappsmál,
að byggingarkostnaður verði
sem lægstur, og að vinnan geti
gengið fljótt fyrir sig. Ýmsar
tilraunir í þessa átt hafa verið
gerðar víða um heim á undan-
förnum árum, og beinist at-
hyglin í vaxandi mæli að verk-
smiðjuframleiðslu, til að spara
álagið á iðnaðarstéttunum,
sem eiga fullt í fangi með
að svara sífellt aukinni eftir-
spurn.
Eitt af uppfinningum á sviði
byggingarmála síðast liðin ár
er Iramleiðsla einingarhúsa.
Verk h/f hefur notfært sér
þessa framför, og látið reisa
800 fermetra verksmiðju í
Kópavogi til þess að framleiða
veggeiningar úr járnbentri
steinsteypu fyrir útveggi. j
verksmiðjunni starfa 15-20
manns, og forstjóri hjá Verk
h/f er Kjartan Blöndal, fram-
kvæmdastjóri Gunnar Hólm-
steinsson og sölumaður Páll
Gunnarsscn.
Rúmt ár er síðan að fram-
leiðsla einingahúsanna hófst
og á þeim tíma hefur fyrirtækið
reist rúmlega eitt hundrað hús,
en á næstu árum ætti afkasta-
geta verksmiðjunnar að geta
orðið 140-160 einbýlishús á ári.
Breidd („modull") veggein-
inganna er 60 sm og hægt er að
fá fjórar hæðir: 0,45-0,90-1,80-
2,67 m og er stærsta einingin
full vegghæð. Einingarnar
henta flestum grunnmyndum af
einnar hæða húsum, og þarf að-
eins að gæta þess, að lengdir út-
veggja séu margfeldi af 60.
HÚSIÐ FOKHELT Á 10
DÖGUM
Einingarnar eru auðflytjan-
legar og sér Verk h/f um að
flytja þær á byggingarstað.
Með einföldum hjálpartækjum
geta tveir til þrír menn reist
húsið á nokkrum dögum.
Einingarnar eru boltaðar
saman að þéttilistum úr plasti
cg er notkun krana ekki nauð-
synleg. Býður þessi byggingar-
aðferð upp á mikinn tímasparn-
að, og hægt er að gerahúsin fok-
held á tíu dögum frá því byrjað
var að reisa veggeiningarnar.
Auk þess er heildarkostnaður
við fullfrágengin einingahús
u. þ. b. 30% lægri, en þegar
byggt er eftir gömlu aðferðinni.
ÓDÝRARI ÞAKSPERRUR
Verk h/f framleiðir einnig
þaksperrur úr tré, og ef þær
eru tilbúnar þegar veggir eru
reistir er hægt að stífa húsið
af jafn óðum. í þeim tilfellum,
þar sem eitt eða tvö skilrúm í
lengdarátt húss eru gerð bei'-
andi, er hægt að komast af með
efnisminni og þar af leiðandi
ódýrari sperrur.
MÚRHÚÐUN ÓÞÖRF
Yfirborð veggeininganna er
hraunað og er múrhúðun að ut-
an óþörf; aðeins þarf að mála
húsið.
Við frágang útveggjanna að
innan má t. d. setja upp tré-
grind og festa hana að innan
við fyrrnefnda bolta í útveggj-
um. Síðan er einangrað og hægt
er að koma raflögnum og hita-
rörum fyrir í einangrun, og að
lokum er veggurinn klæddur.
STAÐLAÐIR GLUGGAR
Fyrirtækið er um það bil að
hefja framleiðslu á stöðluðum
gluggum. Þeir verða framleidd-
ir samkvæmt stöðluðum teikn-
ingum og afhendast tilbúnir til
samsetningar á byggingarstað.
Áætlað er að sala glugganna
hefjist fyrri hluta næsta vetrar.
íþrótta-
blaðið
Eira íþróttablað
landsins.
Fiallar um íþróttir
og útilíf.
Áskriftasímar:
82300 — 82302
FV 7 1974
8,3