Frjáls verslun - 01.07.1974, Blaðsíða 77
IVietagerðin Ingólfur hf. Vestmannaeyjum
Veitir alhliða þjónustu á
veiðafærum
í Vestmannaeyjum er starf-
rækt netagerð, sem nefnist
Netagerðin Ingólfur hf., og er
hún stærst sinnar tegundar í
Eyjum og þjónar bátum um
allt land.
Netagerðin var stofnsett í
kringum 1940, af Ingólfi Theó-
dórssyni, og var hann eigandi
Úr vinnusal netagerðarinnar.
hennar, þar til um síðustu
áramót er fyrirtækið var gert
að hlutafélagi, og eru eigend-
ur nú sex.
Einn af eigendum Netagerð-
arinnar er Sigurður Ingólfsson
og hafði blm. F.V. viðtal við
hann.
— Vegna gossins er neta-
gerðin nú starfrækt á tveim-
ur stöðum, hér í Eyjum og í
Hafnarfirði, og alls starfa 24
menn á vegum fyrirtækisins,
sagði Sigurður. — Starfsemin
byggist aðallega á því að veita
alhliða þjónustu við allar gerð-
ir veiðafæra og framleiða ný.
Við teljum of hættulegt að
einhæfa okkur við ákveðna
gerð veiðafæra, því stundum
kemur fyrir að veiðafæri
verða úrelt, þegar ein tegund
veiða dettur niður, og stendur
fyrirtækið þá uppi aðgerðar-
laust. Þetta kom berlega í ljós,
þegar síldin hætti að veiðast
hér við land, og loðnuveiða-
færi tóku við.
Viðgerðir eru stærsti liður-
inn í starfsemi okkar, en við
framleiðum kringum 100 troll
á ári og kosta þau 55 þús. í
minnstu bátana allt upp í 180
þús. Við útbúum einnig teikn-
ingar af nótum, og útgerðar-
menn geta valið hvernig næt-
ur þeir vilja, og við kaupum
efni alls staðar að úr heim-
inum í þær, og setjum næt-
urnar saman. Verð þeirra er
allt frá 3 milljónum upp í 11
milijónir.
Vélakostur hjá okkur er
mjög fábrotinn, og er aðeins
um að ræða blokkir og rúllur
til að færa veiðafærin á, því
þau eru stór og þung i vöfum.
— Hvernig er afkoman í ár?
— Þó aldrei hafi verið eins
mikið að gera hjá okkur og á
þessu ári, er afkoman léleg,
því alls konar aukakostnaður
hefur lent á okkur vegna goss-
ins. Við þurftum t.d. að borga
ferðir fyrir starfsfólk á milli
Reykjavíkur og Eyja, áður en
fólk fór að flytjast hingað aft-
ur eftir gosið. Einnig koma
þarna inn í fæðiskostnaður og
kostnaður við móttöku á efni
og veiðarfærum. Það hefur
líka gert okkur erfitt fyrir að
mikill samdráttur virðist vera
hjá bátum, og þeir hafa ekki
staðið í skilum á réttum tíma,
sagði Sigurður að lokum.
FV 7 1974
77