Frjáls verslun - 01.07.1974, Blaðsíða 71
einn sal til viðbótar, og er í
athugun að opna þar billjard-
stofu í haust, og kannski ein-
hvers konar miðstöð, fyrir
ungt fólk.
— Hvernig er fjárhagsleg
afkoma hótelsins?
— Við keyptum húsið á 21
milljón, og endurbætur á því
eru þegar komnar í 14 millj-
ónir. Ég geri ráð fyrir að tvö
fyrstu árin verði erfiðust eins
og eðlilegt er, en Útvegsbank-
inn í Vestmannaeyjum hefur
veitt okkur mikla hjálp og
góða fyrirgreiðslu. Það er
óhætt að segja að hótelrekstur
sé gífurlega erfiður rekstur á
allan hátt. Við seljum þjón-
ustu sem gestir borga vel fyr-
ir og gera þeir þar af leiðandi
miklar kröfur um allan að-
búnað.
MIKILL HRÁEFNIS-
KOSTNAÐUR
— Einn stærsti liðurinn í
fjármálum hótelsins er hrá-
efniskostnaður, og það er
mjög mikið atriði að hafa vak-
andi auga með nýtingu hrá-
efnis. Að undanförnu hafa
orðið miklar hækkanir eins og
allir vita, og þá sérstaklega á
dósamat, og allar erlendar
vörur hafa farið smá hækk-
andi. Erfiðasti liðurinn er sjálf
uppbyggingin, og það tekur
eitt ár enn að komast yfir alla
erfiðleikana. En þrátt fyrir
erfiða tíma, reikna ég með
góðri útkomu, og augljóst er
að reksturinn stendur fyllilega
undir sér.
— Hvernig er nýting her-
bergjanna og 'hvort kemur
hingað meira af erlendum eða
innlendum ferðamönnum?
— í júní var rúmlega 90%
nýting, í júlí 96% og í vetur
var rúmlega 50% nýting að
meðaltali. Hingað kemur ekki
eins mikið af erlendum ferða-
mönnum og við bjuggumst
við en aftur á móti koma
hingað fleiri íslendingar. Verð-
lag á íslandi er að fæla alla
erlenda ferðamenn frá, og það
þarf að gera róttækar ráðstaf-
anir til að þessi mikli tekju-
liður í gjaldeyrismálum þjóð-
arinnar minnki ekki. Það
mætti til dæmis aðstoða veit-
ingamenn við hótelrekstur,
svo að verðlag á hótelum geti
lækkað.
VERÐLAG 15% LÆGRA
— Hvernig er verðlagið hjá
ykkur?
— Verðið á herbergjunum
er sambærilegt við verðlag úti
á landi, en verðið í veitinga-
búðinni og veitingasalnum, er
að meðaltali 15% lægra en
annars staðar, og er það
m.a. vegna þess að við fáum
fiskinn ódýrari.
— Hvernig hefur gengið að
ná til Vestmannaeyinga með
hótelrekstur, veitingasal og
veitingabúð?
— Það hefur ekki gengið
eins vel og ég hafði búizt við.
Ég 'hef verið að velta því fyr-
ir mér, hvað beri að gera til
að það gangi betur, og hefur
mér helzt dottið í hug að nota
skammdegið til að kynna sér-
rétti ýmissa þjóða.
VEÐURFARIÐ HÁIR
— Er eitthvað sem gerir
hótelrekstur erfifrari í Vest-
mannaeyjum heldur en á
fastalandinu?
— Það er veðurfarið hér
sem háir eðlilegum ferða-
mannastraumi mest, því ekki
er nærri alltaf flugveður, en
vonandi breytist þetta með
tilkomu Eyjaskipsins sem
kemur til með að ganga dag-
lega milli lands og Eyja.
Vestmannaeyjar hafa mikla
sérstöðu fyrir ferðamenn og
enn er verið að reyna nýjar
aðferðir til að laða ferðamenn
hingað. Það er fyrirsjáanlegt
að ferðamannastraumurinn til
Eyja mirni aukast næsta sum-
ar, og það verður sumar núm-
er eitt hjá okkur á hótelinu,
og sumarið, sem nú er að líða
sumar númer tvö, sagði Birg-
ir að lokum.
CANON
CANON MP 1212
er ein gerðin af 20,
sem CANON hefur upp
á að bjóða.
•
MP 1212 hefur
bæði strimil og ljósa-
borð.
CANON vélar með
ljósaborði kosta
frá kr. 11.000,00.
•
Vandið valið —- veljið
CANON.
Það er yður í hag.
SKRIFVÉLIN
Suðurlandsbraut 12.
Sími 85277.
FV 7 1974
71