Frjáls verslun - 01.07.1974, Blaðsíða 69
— Allir bátar, 60 talsins
hafa byrjað veiðar, og fjögur
frystihús eru starfraekt af full-
um krafti, en eins og kunnugt
er voru þau fimm fyrir gos,
en eitt þeirra skemmdist.
Saltfiskstöðvarnar hafa ekki
tekið til starfa, en reiknað er
með að nokkrar verði teknar
í notkun fyrir næstu vertíði.
Það kemur ekki mikið að sök,
þó að starfsemi þeirra liggi
niðri enn sem komið er, því
afkastageta frystihúsanna er
svo mikil, að þau geta tekið
á móti eins miklum fiski og
allar fiskverkunarstöðvarnar
gerðu til samans fyrir gos; það
þurfti aðeins að bæta við vél-
um og fólki.“
— Talað hefur verið um að
selja vikur til annarra landa.
Er byrjað að undirbúa þá
sölu?
— Það er ekki tímabært að
hugsa um útflutning, því að
eins og málin standa er full
þörf fyrir vikurinn hér í Eyj-
um í gatnagerð, flugbrautina,
og til að fylla og jafna bygg-
ingarsvæði. Við verðum fyrst
og fremst að tryggja okkur
nægar birgðir af byggingar-
efni næstu áratugi og aldir.
MIKILVÆGAST AÐ FRAM-
LENGJA KLÓAKIÐ
— Hvað er að segja um
framtíðina?
— Það eru mörg verkefni
framundan. Enn er unnið að
hreinsun gosefna, uppgræðsla
er hafin á vegum Land-
græðslusjóðs. Ráðgert er að
skipalyfta komi til Vestmanna-
eyja, sem tekur allt að 500
tonna skip. Nú er verið að
vinna að því að stofna félag
til að sjá um rekstur á skipi
er gengi daglega á milil Eyja
og lands. Skip þetta á að taka
um 80 farþega, annast gáma-
flutninga, og geta flutt bíla.
Smíði skipsins gæti tekið ár
til fimmtán mánuði.
En mikilvægasta verkefnið
er að framlengja klóakið frá
höfninni, og koma því norður
fyrir Eiði. Það er eitt af þeim
stóru málum, sem að kalla,
en ég reikna ekki með a ð
hægt verði að ráðast í slíkar
stórframkvæmdir fyrr en á
næsta ári, sagði Magnús að
lokum.
Hótel Vestmannaeyjar:
90% nýting á hótelherbergjum
í sumar
— rætt við Birgi Viðar Halldórsson hóteleiganda
Aðeins eitt hótel er starf-
rækt í Vestmannaeyjum og
nefnist það Hótel Vestmanna-
eyjar. Eigcndur þess eru tveir
bræður, Birgir Viðar Halldórs-
son, sem er lærður þjónn og
kokkur og Konráð Halldórs-
son, sem er lærður þjónn.
Birgir annast fjármál, fram-
kvæmdir og skrifstofustörf
fyrir hótelið, og Konráð sér
um gcstamóttöku og rekstur
barsins.
Blm. F.V. átti viðtal við
Birgi og snurði hann um
rekstur hótelsins, en Birgir er
aðaleigandinn.
— Hver er ástæðan fyrir
því að þið hófuð rekstur
hótels í Vestmannaeyjum?
— Ég hafði alltaf áhuga á
að fara út í eigin rekstur, og
í upnhafi ætlaði ég að reka
hótelið einn, en það var allt
of mikið fyrirtæki, svo ég tók
„litla bróður“ með, sagði Birg-
ir.
Húsið var auglýst til sölu
árið 1972, en hér var áður
Hótel H. Ben. Þegar gosið
hófst fengu starfsmenn Við-
lagasjóðs bækistöð þar, og það
var ekki fyrr en um síðustu
áramót að við komum inn í
dæmið og keyptum húsið.
Húsið og innbú þess var þá
nokkuð illa farið, og við urð-
um að byrja á því að kaupa
ný húsgögn og innrétta allt
upp á nýtt. Við höfum hann-
að allar innréttingar eftir eig-
in hugmyndum, og Halldór
Halldórsson bróðir okkar
hefur haft yfirumsjón með
endurbyggingu á tréverki
og Friðþjófur Sigursteinsson
rafvirki hefur séð um allar
nýlagnir í hótelið og endur-
nýjað allar leiðslur. Það er
ætlunin að þessir menn komi
inn í fyrirtækið í haust þegar
því verður breytt í hlutafélag.
Það hafa heyrst um það
raddir að „ýmis nöfn“ stæðu
að baki okkur, og hefur verið
í því sambandi talað um aðila
eins og Loftleiðir, Flugfélagið,
Einar ríka, Sambandið og
Kristinn Finnbogason, en ég
vil nota tækifærið til að leið-
rétta þennan misskilning. Við
erum alveg einir með þennan
rekstur og hótelinu verður
breytt í hlutafélag innan tíð-
ar, eins og áður segir.
ENDURBÆTUR Á HÚSINU
ORÐNAR 14 MILLJÓNIR
— Hvað eru mörg herbergi
á hótelinu?
— Hér eru þrjátíu svefnher-
bergi, 1 veitingasalur, setu-
stofa og veitingabúðin Lund-
inn, sem tekur 60 manns í sæti.
Herbergin eru öll tveggja
manna, en sumum þeirra má
breyta í þriggja manna her-
bergi ef því er að skipta.
Við opnuðum bar um miðj-
an ágúst, sem tekur þrjátíu
manns í sæti, og svo höfum við
G9
FV 7 1974