Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1974, Side 49

Frjáls verslun - 01.07.1974, Side 49
sókna eru notuð til að finna, hverjar þarfirnar eru fyrir hvern einstakan markað. Vör- unni er síðan breytt í samræmi við þessar þarfir. Segja má, að vöruaðlögun sé lykill að aukinni sölu. Það, að sníða vöruna að þörfum við- skiptavinanna hlýtur að auka ánægju þeirra og gefa vörunni meira notagildi í þeirra augum. Ekki er að því að spyrja, sá, sem er ánægður með kaupin, kemur aftur og kaupir meira! • Umboðsmenn Samskipti útflytjanda og kaupenda (umboðsmanna) kall- ast næsti þáttur. Ekki er nóg að hafa góða vöru, hún selst ekki af sjálfu sér. Því verður íslenzki útflytjandinn að finna einhvern, sem vill annast sölu á vörum hans á hinum erienda markaði. Þessir aðilar eru kall- aðir umboðsmenn og geta ver- ið heildsalar eða smásalar eða jafnvel hvorttveggja í senn. Góð og greiðug viðskipti byggj- ast á samvinnu beggja aðila, umboðsmanns og útflytjanda. Stundum hefur á vantað, að þessi samvinna hafi verið eins og best væri á kosið. Báðum aðilum má þar um kenna, en ég ætla að benda á nokkur at- riði, sem varða útflytjandann, hér á eftir. Það hefur stundum verið sagt, að íslenzkir verzlunar- menn væru fremur pennalatir. Persónulega hef ég orðið vitni að dæmalausri pennaleti. Það tók eina af æðstu menningar- stofnunum íslands 11 mánuði að svara einu bréfi. Geri aðrir betur, en eftir svari hafði ver- ið rekið bæði með símskeytum og bréfum og seinast persónu- lega. Auðvitað kom svarið 11 mánuðum of seint! Kannski má segja, betra seint en aldrei, því að ég hef hitt verzlunarmenn, er skiptu við fsland, sem aldrei feneu svör við bréfum. Slíkt virðingarlevsi er algjörlega ó- þolandi. Eiei viðskintin að ganga snm'ðulaust, verður gaen- kvæm virðing að ríkia milli útflvtjanda og umboðsmanns. Báðir verða að virða kröfur hvors annars. Til að leegja áherslu á mikilvæei þessa þátt- ar, nefni ég hér eitt atvik. sem er mér ofarleea í huga. Þetta atvik gefur góða huemvnd um, hvernig - samband útflvtianda og umboðsmanns á ekki að I vera. Við nám b ðniarkfKðsstarfsemi Ágúst Ágústsson fæddist árið 1946 á Þingeyri í Dýra- firði. Hann stundaði þar al- menn störf á sjó og landi og var verzlunarmaður hjá Kaup- félagi Dýrfirðinga ‘um tveggja ára skeið. Þá hélt hann til Englands og kynnti sér verzl- unarstörf í hálft ár. Fór hann síðan í Samvinnuskólann og réðist þaðan til skrifstofu Sambandsins í Hamborg um tveggja ára skeið. Vorið 1973 lauk hann prófi í viðskipta- fræði frá Red River Commun- ity College í Winnipeg. Vorið 1975 lýkur hann Bachelors- prófi með sérhæfingu x mark- aðsstarfsemi frá University of Manitoha. Ágúst Ágústsson Eitt sinn á vörusýningu í Þýskalandi spurði maður einn mig mikið um ákveðið íslenzkt fyrirtæki. Maður þessi tjáði mér, að hann væri umboðsmað- ur téðs fyrirtækis. Honum hafði gengið vel að selja vörur þess og þær almennt líkað vel. „Vandamálið er,“ sagði þessi áeæti maður, „sambandið við hið íslenzka fvrirtæki!Ef til vill væri betra að segja sambands- leysið!“ Maðurinn rakti mér svo raunasöguna. Mörg voru þau bi’éfin. sem hann hafði skrifað, bæði á ensku og þýsku, en engin svör létu á sér kræla. Pantanir voru annað hvort ekki afgreiddar, komu of seint eða eitthvað var öfuet miðað við upnrunalegu pöntunina. Um- boðslaun hafði hann afskrifað með öllu. Við skulum vona, að slík mistök sem bessi endurtaki sig ekki. Ef slíkt kemur oft fyrir er hætt við, að ekki einungis fyrirtækið, sem á í hlut í það skiptið, verði fyrir álitshnekki, heldur íslenzkur útflutnings- iðnaður í heild. Útflutningur á fullunnum vörum frá íslandi mun aukast með hverju ári, sem líður. Til þess að vera samkeppnisfærir, verða útflytjendur að hafa að- gang að öllum þeim gögnum, sem fáanleg eru, á hverjum tíma, um útflutningsmál. Bæk- ur og tímarit eru gefin út í hundraðatali, varðandi „ex- port“, út um allan heim. Ekki er seinna vænna að fara að fylgjast vel með þessum út- gáfum, og næg verkefni bíða þýðenda á þessum vettvangi. Von mín er, að íslenzkur út- flutningsiðnaður megi þróast og eflast á ókomnum tímum. Eng- um íslendingi eru þessi mál óviðkomandi. bví að viðskipta- legt sjálfstæði tryggir velmeg- un og framfarir á öðrum svið- um. FV 7 1974 49

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.