Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1974, Side 59

Frjáls verslun - 01.07.1974, Side 59
Garðyrkja Vantar grænmetismarkað, þegar framleiðsla er í hámarki — segir Einar í Garði ■ Hrunamannahreppi Á Flúðum í Hrunamanna- hreppi eru skilyrði til garð- yrkju hin ákjósanlegustu enda jarðhiti næg’ur þar á staðnum og í næsta nágrenni. Niðri við Litlu-Laxá eru stórar spildur undir matjurtagörðuan, sem garðyrkjubændur í nágrenn- inu rækta, svo og gróðurhús- in, sem þeir hafa byggt fyrir viðkvæmari tegundimar. Einn garðyrkjubændanna í nágrenni Flúða er Einar Hall- grímsson í Garði. Hann kynnt- ist garðræktinni í Hvammi í Hrunamannáhreppi en byggði sjálfur í Garði á árunum 1944—45. Hafði hann stundað nám á garðyrkjuskólanum í Hveragerði og unnið síðan að ræktun í Hvammi. Þá var starfandi þar eystra hlutafé- lag, sem hét Gróður hf. og um líkt leyti og Einar hóf sjálf- stæðan búskap voru stofnað- ar þrjár nýjar gróðrarstöðvar. Nú starfa á þessu svæði 8 gróðrarstöðvar og þar er mest.a grænmetisræktunarland á íslandi auk 8000 fermetra undir gleri. Eru það kál og gulrætur sem vega mest af einstökum grænmetistegund- um. UPPHITAÐUR JARÐVEGUR Hjá Flúðum eru nú tvær borholur, sem gefa um 20 sekúndulítra af nærri 100 stiga heitu vatni. Hjá Einari í Garði er ræktunin á hálfum þriðja hektara og jarðvegur- inn næst stöðinni hitaður upp með ræsum, en annað er á köldu landi. Segja má að Ein- ar hafi sérhæft sig í blómkáls- rækt, sem er mun vandasam- ari en t.d. ræktun hvítkáls, og eru um 40 þús. blómkálsplönt- ur í görðium hjá honum í sum- ar. Einar segir nauðsynlegt að hafa ræktunina blandaða, því að alltaf geti orðið sveiflur í framleiðslu á einstökum teg- undum, m.a. vegna þess, að garðyrkjubændur hafa tak- markaða vitneskju um, hvað starfsbræður þeirra ætla að rækta og því getur orðið of- framleiðsla á einni tegund meðan skortur er á annarri. Auk tómata og agúrka og blómkálsins, sem áður var nefnt, ræktar Einar hvítkál og rauðkál og gerir tilraunir með nýjar tegundir eins og púrru, sellerí og rósakál. ANNIR ALLT ÁRIÐ Garðyrkjubóndinn hefur nóg að sýsla allan ársins hring. Uppskerutímanum lýk- ur ekki fyrr en í nóvember og gróðurhúsin þurfa að vera til- búin á nýjan leik um áramót. Á dauða tímanum er moldin soðin og húsin sótthreinsuð til að koma í veg fyrir sýkingu jurtanna. Snemma í janúar er svo sáð fyrir tómötum og agúrkum og plönturnar aldar upp við rafmagnsljós. Um mánaðamót febrúar-marz er dreifplantað í húsin og í sæmilegu ári má búast við að fyrstu gúrkurnar séu þroskað- ar upp úr miðjum marz en tómatar um mánaðamótin apríl-maí. Þá er útivinnan líka Einar Hallgrímsson í Garði sýn- ir okkur einn blómkálshausinn. Garður í Hrunamannalireppi þar sem Einar Hallgrímsson hefur stundað garðyrkju í 20 ár. FV 7 1974 59

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.