Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1974, Page 68

Frjáls verslun - 01.07.1974, Page 68
Vestmannaeyjar Húsnæðisleysið háir okkur mest Rætt við Magnús Magnússon, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum íbúum Vestmannaeyja fjölg- ar stö&ugt og uppbygging bæj; arins er á hraðri uppleið. í viðtali sem blm. F.V. átti við Magnús Magnússon, bæjar- stjóra, kemur fram, að íbúa- talan er nú orðin 3500—3600 manns, og alltaf koma búslóð- ir með hverri skipaferð. — Það sem háir uppbygg- ingunni mest er húsnæðisleysi, sagði Magnús. — Það eru margir, sem vilja koma aftur, en geta það ekki vegna hús- næðisskorts. Okkur var úthlut- að 60 bráðabirgðaíbúðum, og eru 30 tilbúnar nú þegar, en samt sem áður eru hátt á 200 fjölskyldur, sem bíða eftir húsnæði. Það er búið að panta hús frá Danmörku, og í hverju þeirra eru tvær litlar íbúðir, og má á auðveldan hátt breyta þeim í meðalstór einbýlishús. Innflutningur þeirra hefst í október og þau síðustu koma til landsins í janúar. Það er bærinn, sem flytur húsin inn, og við fáum styrk úr Viðlaga- sjóði og lán úr Seðlabankan- um til kaupanna, og reiknum með að fá frestun á greiðslu aðf lutningsg j aldsins. NÝIR ÍBÚAR — Hefur flutzt hingað fólk, sem ekki bjó hér, áður en gos- ið hófst? — Já. Hingað er komið margt fólk. sem ekki bjó hér áður. Vestmannaeviar hafa verið mikið í sviðsljósinu og það hefur ýtt undir fólk að flytjast 'hingað Einnig búa margir iðnaðarmenn hér núna, sem unnu sem sjálfboðaliðar á meðan á gosinu stóð, og vilja taka þátt í uppbyggingunni. Það er augljóst mál, að um leið og hægt verður að útvega nægilega margar íbúðir, verð- ur íbúatalan orðin jafn há og fyrir gos. Magnús Magnússon, bæjarstjóri. — Á hvaða þátt er mest áherzla lögð á í uppbygging- unni? — Við leggjum fyrst og fremst áherzlu á fjölgun íbúð- arhúsa. Fyrir gos skipulagði bærinn svæði til bygginga 6— 700 íbúða og er nú verið að undirbúa smíði 3—400 þeirra, á þremur til fjórum næstu ár- um. 84 íbúðir verða smíðaðar í fyrsta áfanga og verða þær fyrstu tilbúnar um næstu ára- mót. 36 íbúðir verða síðan á næsta ári. Á sama tíma er áætlað að einstaklingar og fé- lög byggi 150 íbúðir, og þá verðum við búnir að bæta upp það sem tapaðist í gos- inu, meira að segja rúmlega það. SUNDLAUG OG ÍÞRÓTTA- HÚS Á NÆSTA ÁRI — Hafa stofnanir tekið til starfa á ný? — Sjúkrahúsið verður til- búið um miðjan september og dvalarheimili aldraðra verður tilbúið 7. september. Barna- heimilið og leikskólinn hafa verið tekin í notkun, en allar þessar byggingar voru reistar fyrir gjafafé sem Rauða kross- inum og Hjálparstofnun kirkj- unnar bárust. Reiknað er með að sundlaug og íþróttahús taki til starfa á næsta ári. Húsin verða flutt inn, en bygging þeirra er boðin út, og verða teknar endanlegar ákvarðanir um verktaka í byrjun septem- ber. Um skólamál er það að segja, að s.l. vetur störfuðu aðeins gagnfræðaskólinn, iðn- skólinn og tónskólinn, en við vonumst til að stýrimanna- skólinn og vélskólinn verði einnig starfræktir í vetur. Áð- ur en gosið hófst, var mikið talað um að stofnsetja fiskiðn- skóla og ég geri ráð fyrir,_að starfsemi hans hefjist fljót- lega. Flestar verzlanir, smiðj- ur og fyrirtæki eru einnig komin í gang. MIKIL AFKASTAGETA FRYSTIHÚSA — Hvernig er ástandið í út- gerðarmálum? (58 FV 7 1974

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.