Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1974, Side 78

Frjáls verslun - 01.07.1974, Side 78
Vík ■ Mýrdal: Hafa nægilegt landrými fyrir 3000 manna byggð Rætt við sr. Ingimar Ingimarsson, oddvita Hvammshrepps Á jarðhæðinni í læknisbú- staðnum í Vík í Mýrdal hefur Hvammshreppur í V.-Skafta- fellssýslu skrifstofur sínar. Á laugardagsmorgni í júlí hitt- um við sr. Ingimar Inghnars- son, oddvita, þar á skrifstof- unni, en hann var að ljúka nokkrum bráðnauðsynlegum verkefnum, og ætlaði síðar um daginn að leggja upp í sumar- leyfisferð um nýja hringvcg- inn, sem opnaður var form- lega. daginn eftir. Það var því ekki seinna vænna að ná í þennan forsvara Víkur í Mýr- dal og heyra hann segja nokk- uð^ af högum þeirra Vík'urbúa. í Hvammshreppi bjuggu í desember sl. 516 manns en þar af um 390 í Vík. Þorpið byggðr ist út frá bæjunum Norður- og Suður-Vík, fyrst og fremst vegna verzlunarreksturs bænd- anna á þessum jörðum. Þannig hefur kauptúnum myndazt smátt og smátt, en síðustu 15- 20 árin hefur íbúafjöldi nokk- urn veginn staðið í stað. Tals- vert hefur hann þó verið á uppleið að undanförnu. NÝTT HÓTEL í UNDIR- BÚNINGI. Margs konar þjónustustarf- semi er stunduð í Vík, á veg- um Kaupfélags-Skaftfellinga og Verzlunarfélags Vestur- Skaftfellinga. Þá eru einnig búsettir sjálfseignarvörubíl- stjórar, sem vinna við brúar- gerð og vegaframkvæmdir, eða annað, sem til fellur. Kaupfélagið rekur bifreiða- verkstæði og trésmiðjur, en einnig ferðamannaþjónustu. Er það nú að byggja nýja ferða- mannaverzlun. Hótel hefur kaupfélagið einnig annazt rekstur á, en það er gamalt orðið og áform uppi um að byggja nýjan gististað. Liggja teikningar þegar fyrir og er þar gert ráð fyrir 40 gistiher- bergjum. Sr. Ingimar sagði, að strax hefði orðið vart veru- legrar aukningar í umferð um Vik í Mýrdai með tilkomu hringvegarins, og myndi að- staða fyrir ferðamenn í þorp- inu bætt verulega m. a. með skipulagningu tjaldstæðis, snyrtiaðstöðu og öðrum nauð- synjum. Allverulegar breytingar hafa orðið á rekstri verzlunarfélags- ins. Það er hlutafélagið Stapi, sem leigir verzlunaraðstöðuna. Þá hafa aðrir aðilar tekið við rekstri bifreiðaverkstæðis fé- lagsins og Bíla- og búvélasöl- unnar að hálfu. Matkaup í Reykjavík hefur keypt slátur- húsið í Vík. Einstaklingar hafa líka keypt bílakost verzl- unarfélagsins, en vöruflutning- ar, sem haldið var uppi með Séð af Reynisfjalli til Víkur í Mýrdal. Sr. Ingimar Ingimarsson í Vík í Mýrdal. Jarðirnar Norður-Vík og Suður-Vík í baksýn. 78 FV 7 1974

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.