Frjáls verslun - 01.07.1974, Page 92
Múrverk erfiðasta iðngreinin
— rætt við Þór Þórðarsson formann iVlúrarameistarafélagsins
„Ástand í atvinnumálum
múrara er mjög gott um þess-
ar mundir, og úhætt er að
segja að skortur sé á múrur-
um, og ekki er annað að sjá,
en að nóg verði að gera fram
eftir vetri,“ sagði Þórður Þórð-
arson, formaður, Múrarameist-
arafélags fslands í viðtali við
F. V.
„Ástandið er búið að vera
mjög gott sl. tvö til þrjú ár,
en ég heyri að menn eru farn-
ir að óttast peningaleysi, sem
gæti orsakað atvinnuleysi
seinna í vetur og næsta sumar.
Fólk hefur ekki nægilega hátt
kaup til að mæta dýrtíðiinni og
nokkuð er farið að bera á því
að framkvæmdir stöðvist, og
er það öruggt merki um pen-
ingaleysi.“
„Telur þú að uppmælingar
séu rétt vinnuaðferð hjá múr-
urum?“
„Uppmælingar hafa tíðkast
hjá múrurum allt frá upphafi
og þeir hafa lengst allra stétta
unnið samkvæmt þeim. Að
mínu áliti er það tvímælalaust
rétt vinnuaðferð, því eðlileg-
ast er að verðlag miðist við af-
köst.“
,,Þú lærðir múrverk í kring-
um 1940. Hafa orðið einhver
framför síðan, á því sviði, sem
létta vinnuna?"
„Það eina, sem komið hefur
fram er sprautan, sem notuð
er við pússningu og léttir það
talsvert vinnuna, og veitir
ekki af, þar sem múrverk er
geysilega erfið iðngrein og að
mínu áliti sú erfiðasta.“
„Eru múrara almennt á-
nægðir með kjör sín?“
„Já, ég held þeir séu nokk-
uð ánægðir, en ég hef alltaf
haldið því fram, að múrarar
eigi að fá hærri laun, en aðrir
iðnaðarmenn, því þeir eru yf-
irleitt útslitnir um fimmtugt,
og verða að hætta vinnu fyrr
en aðrir iðnaðarmenn, og þá
er ekkert sem tekur við eins
og t. d. hjá trésmiðum, þar
sem þeir geta yfirleitt farið
inn á trésmíðaverkstæði og
unnið föndurvinnu."
,Eru íslendingar kröfuharðir
um að múrverk sé vel gert?“
„Já, þeir eru það, og ég hef
tekið eftir því að erlendis t. d.
á hinum Norðurlöndunum,
rétta múrara ekki veggi af
eins og hér er gert, og eru
þar af leiðandi dældir og ó-
jöfnur í pússningunni."
„Hvað eru margir múrarar í
Reykjavík?“
„í Reykjavík eru 50-60 múr-
arameistarar og hátt á þriðja
hundrað múrarar. Þessi tala
helzt yfirleitt nokkuð jöfn, þó
oft hafi verið erfitt að fá
menn til að læra múrverk,
þegar nóg hefur verið að gera
í léttari iðngreinum. Það er
mikil samstaða á meðal múr-
ara og þeir eiga sumarbústaða-
land að Öndverðarnesi í
Grímsnesi. Þar er nú verið að
reisa sundlaug og auk þess er
þar golfvöllur.
Sveinar, múrarar og meist-
arar standa mjög vel saman í
menningarmálum og Múrara-
meistarafélagið er eina meist-
arafélagið þar sem meðlimir
eiga sameign,“ sagði Þórður
að lokum.
Hin heimsþekktu STRAN-STEEL stálgrinda-
hús af öllum stærðum.
92
FV 7 1974