Frjáls verslun - 01.04.1975, Blaðsíða 9
Eins og vænta mátti
tóku Sovétmenn af
miklum rausnarbrag á
móti Einari Ágústssyni og
föruneyti hans, er utan-
ríkisráðherra var í opin-
berri heimsókn í Sovét-
ríkjunum nýverið. Segja
kunnugir, að viðtökurnar
hafi verið með því albezta
er þar þekkist, þegar
erlenda leiðtoga ber að
garði. Til marks um það
er fullyrt, að íslenzku
gestirnir hafi verið fluttir
í einkaþotu Breznevs á
milli staða í Sovétríkjun-
um og að ráðherrann hafi
fengið sérstaka íbúð til
umráða í Moskvu en ekki
verið látinn búa á hóeli.
Það fylgir sögunni, að
þetta hafi verið sama
lúxusíbúðin, sem Einar
Olgeirsson gisti í, þegar
hann var í heimsóknum
hjá Kremlverjum áður
fyrrum.
Kristinn Finnbogason,
framkvæmdastjóri Tím-
ans, er æfur af rciði
þessar vikurnar vegna
þcss að hann fékk ekki
bankastjórastöðuna hjá
Utvegsbankanum sem
liann hafði sózt mjög eftir.
Þóttist hann eiga vísan
stuðning hjá áhrifamönn-
um í Framsóknarflokkn-
um eins og Ólafi
Jóhannessýni, Einari
Agústssyni, Steingrími
Hermannssyni og
Þórarni Þórarinssyni.
Vinir Kristins segja, að
fyrst hafi Ólafur brugðist
og síðan allir hinir.
Skuldinni er samt sérstak-
lega skellt á Þórarin og
hafa þeir samherjar Krist-
ins á orði, að Tímarit-
stjórinn verði ekki endi-
lega boðinn oftar fram til
þings.
Horfur eru taldar á, að
130-140 megavatta raf-
orkuver verði reist við
Blönduvirkjun, ef sam-
komulag næst milli yfir-
valda og landeigenda. Er
þá talið augljóst, að orku-
frekur iðnaður í einhverri
mynd risi upp á Norður-
landi í tengslum við þessa
virkjun. í sambandi við
raforkusölu til stóriðju og
nauðsyn samninganna um
álverið í Straumsvík á
sinum tíma, mun athugun
hafa leitt í ljós, að féllu
þau viðskipti við álverið
algjörlega niður yrði
Landsvirkjun nú að
hækka heildsöluverð á
rafmagni um 32% og
Rafmagnsveiturnar að
hækka sínar gjaldskrár
gagnvart einstaklingum
og atvinnufyrirtækjum
um 10-15%.
I miðju togaraverk-
fallinu fóru sumir
útgerðaraðilar að
gera samanþurð á
kostnaði við að láta skipin
liggja bundin í höfn eða
halda þeim úti.. Niður-
stöðutölurnar voru þær,
að það kostaði 119 þús. á
dag að Iáta einn af stóru
togurunum liggja við
bryggju en tapið á
hverjum úthaldsdegi hjá
sams konar skipi mun
hins vegar hafa verið
reiknað 130 þús. krónur.
Við launauppgjör fyrir
17 daga túr, sem var ný-
afstaðinn skömmvi fyrir
verkfall, kom í ljós, að
kaup háseta var um 70
þús. krónur en skipstjóri
hafði 210 ’þús. fyrir þann
tíma.
Umsvif austantjalds-
ríkjanna eru alltaf að
aukast á íslandi. Nýjasta
nýtt er, að Pólverjar hafa
látið í ljós óskir um að fá
að hafa hér staðsettan
pólitískan fulltrúa auk
viðskiptasendimanna, sem
hér hafa verið um
nokkurt skeið.
Allverulegar yfirborg-
anir ku enn tíðkast í
vissum greinum bygg-
ingariðnaðarins þrátt
fyrir spár um erfiðleika
og jafnvel atvinnuleysi.
Mcistari nokkur, sem
ekki var alls kostar
ánægður með vinnuflokk
á sínum snærum, vildi
skipta um mannskap fyrir
nckkru og sagði mönnun-
,um upp en mjög erfiðlega
gekk að finna menn í
staðinn. Þetta á við um
hina almcnnu bygginga-
vinnu og störf trésmiða.
Hins vegar er ástandið
mun lakara hjá sumum
öðrum stéttum iðnaðar-
manna og ýmsar blikur á
Iofti, t.d. hjá málurum og
pípulagningamönnum.
É==
FV 4 1975
9