Frjáls verslun - 01.04.1975, Blaðsíða 97
— Æ, hver skrambinn. Það hef-
ur verið sólskin alla vikuna og
nú fer að rigna — á sunnudegi!
Kunnur prestur þjónaði um
skeið úti á landi. Þetta var í
fámennri sveit og langt á milii
bæja. Eitt sinn var prest’ur að
aka þjóðveginn heim á leið,
nokkuð við skál. Vegalögregl-
an var þá aldrei þessu vant á
þessari sömu leið og sáu þeir að
ekki var allt með felldu hjá
presti. Hófst nú talsverður
kappakstur en prestur ætlaði
ekki að gefa sig og hafði það af
að komast heim á prestsetrið
áður en Iögreglubíllinn næði
honum. Þegar þeir lögreglu-
menn komu í hlaðið, gekk
prestur út á móti þeim, með
vænan sopa í glasi:
— Skál, piltar. Það er gott
að ná úr sér hrollinum með
gúlsopa af þessu!
Og með það skellti hann inni-
haldinu í sig, en af frekari að-
gerðum lögreglunnar varð ekki
í það sinn.
Og hér er ein dagsönn úr
Reykjavíkurlífinu.
Það gerðist fyrir skömmu, aði
manni nokkrum varð það á að
bakka á næsta bíl um leið og
hann hugðist fara út af bíla-
stæði í miðborginni. Nokkuð á-
berandi dæld kom á hinn bíl-
inn, en eigandi hans var ein-
hvers staðar víðs fjarri í vinnu.
Vegfarendur tóku eftir því, að
þarna var á ferðinni einn af
þessum strangheiðarlegu sam-
borgurum, því að hann fór út
úr bíl sínum, skoðaði skemmd-
irnar, sem hann hafði valdið,
skrifaði á miða orðsendingu til
eiganda 'hins bílsins og setti
undir rúðuþurrkuna.
Það var augsýnilega engin á-
stæða til að kalla á lögregluna
eða taka niður númer á bílnum
hjá þessum sjentilmanni. Þegar
eigandi laskaða bílsins kom svo
á bílastæðið um kvöldið, tók
hann eftir miðanum og las
hann:
— Helvítis fíflin hérna í
kringum mig halda að ég sé að
skrifa nafn og heimilisfang á
þennan miða. En það geri ég
sko örugglega ekki!
Jón Ármann Héðinsson, var
nýlega spurður um helztu kosti
þess að vera alþingismaður.
— Að hafa fast bílastæði í
miðbænium, svaraði Jón Ár-
mann um hæl.
Bóndinn var nýbúinn að
festa kaup á bíl hjá útsmogn-
um bilaumboðssala. Það komu
undarlegustu aukaliðir inn á
reikninginn áður en blessaður
bóndinn fékk nýja bílinn loks-
ins afhentan og gat keyrt heim.
Nokkru síðar kom bílasalinn
að máli við bóndann og vildi
kaupa af honum kú, því að
hann ætlaði að hefja smátil-
raunir í landbúnaði á landar-
eign, sem hann hafði keypt.
Bóndinn seldi honum kúna en
lét hann hafa svohljóðandi
reikning með:
1 stk. kýr
(grunnverð) . . 150 þús. kr.
2 horn
(aukabún.) .. 6 — —
2 aukamagar .... 8 — —
Aukatankur með 4
botnventlum . . 12 — —
Leðuráklæði
yfir allt ...... 16 — —
Aukaþurrka fyrir
afturrúðuna .. 3 — —
Samtals 195 þús. kr.
— Þú sérð að þetta er hann Gaui, sem þú ætlar að henda út.
Hver heldurðu að splæsi nú á okkur?
FV 4 1975
97