Frjáls verslun - 01.04.1975, Blaðsíða 87
Hið nýja og
glæsilega
liótel, sem
Loftleiðir
eiga 1/3
hluta í,
Hótel
Aerogolf,
sem
stendur
skammt frá
flugvellin-
um.
í öðrum
af tveim
veitinga-
sölum í
Hótcl
Aerogolf
Nýlega hafa farið fram viðræð-
ur við Luxair um aukið sam-
starf. Félagið sýndi rekstrartap
í fyrra og forráðamenn þess eru
því áhugasamir um að reyna
aðrar og nýjar leiðir.“
Nýlega gerði stjórnin í Lux-
emborg loftferðasamninga við
Thailand og Singapore, sem
munu aðallega koma Cargolux
til góða. Fyrir 10 árum voru
uppi áform hjá Luxair um að
fljúga til landanna fyrir botni
Miðjarðarhafs en ófriðarástand-
ið á þeim slóðum gerði þau að
engu. Með vaxandi viðskiptum
við Arabaríkin og þá sérstak-
lega olíulöndin er hugsanlegt,
að samgöngur verði teknar upp
milli Luxemborgar og þeirra.
Einnig er Sviss meðal þeirra
landa, sem Luxair kynni senn
að hefja flugferðir til, en öll
slík útvíkkun á ferðakerfi fé-
lagsins myndi verðia bæði Loft-
leiðum og Luxair til gagns og
virðist gæta þess skilnings hjá
báðum félögum, að þau geti
hagnazt verulega á nánara
samstarfi í farþegaflutningum.
# Hótel
Aerogolf
tveggja ára
Fjárfestingar Loftleiða í Lux-
emborg nema nú um 50 millj-
ónum franka. Er það einn þriðji
hluti í Cargolux, byggingar fyr-
ir farþegaafgreiðslu og þjón-
ustu, ásamt eldhúsi á Luxem-
borgarflugvelli og 25% í gisti-
húsinu Hotel Aei’ogolf, sem er
inni í skógarrjóðri í næsta uá-
grenni við Luxemborgarflug-
völl.
Hotel Aerogolf er tveggja ára
gamalt. Það er mjög nýtízku-
legt og allur aðbúnaður gesta
þar er með miklum sóma. Her-
bergin eru 150 talsins, tveggja
manna með baði. Auk þess eru
tveir veitingasalir, allmörg
fundaherbergi og barir. Rekst-
urinn gekk vel fyrsta árið og
fram í september í fyrra en þá
hallaði undan fæti. Reyndist
smávægilegt tap vera á rekstr-
inum í fyrra. Með tilkomu Hot-
el Aerogolf var tala hótelrúma í
höfuðborg Luxemborgar komin
í 2300.
Þátttaka Loftleiða í byggingu
þessa hótels var einn liður í
viðleitni félagsins til að örva
ferðamennsku í Luxemborg, að
fá þann mikla fjölda fólks, sem
félagið flytur þangað og þaðan
til að staldra þar við og skoða
sig um. í nokkur ár hefur verið
góð samvinna við ferðaskrif-
stofur í Luxemborg um þetta
og ér nú á boðstólum áningai’-
dvöl í 24, 48, eða 72 tíma fyrir
Loftleiðafarþega í Luxemborg.
§ Gagnkvæmur
skilningur
Það virðist góður hugur í
Loftleiðamönnum í Luxemboi’g
og ekki var annað að skilja á
þeim opinberum aðilum í Lux-
emborg, sem við höfðum tal af,
að öll viðskipti við íslenzka fé-
lagið gengi eins og bezt yrði á
kocið. Sá skilningur vii’ðist al-
mennt ríkjandi, að báðir aðilar
njóti góðs af flugstarfsemi Loft-
leiða og að hún eigi að fá að
eflast. Annar sambærilegur
kostur sé alls ekki fyrir hendi.
FV 4 1975
87