Frjáls verslun - 01.04.1975, Blaðsíða 33
vegagerð og nýtast mætti við
íslenzkar aðstæður? Væri mcð
auknum kaupum á nýjustu
tegundum moksturstækja hægt
að halda vegum hér opnum
mun Iengur en nú gerist að
vetrarlagi? Býður tæknin upp
á möguleika til að halda t. d.
Oddsskarði og Breiðadalsheiði
opinni yfir veturinn, ef fjár-
magn væri nægilegt fyrir
hendi? Hvað kostaði það mik-
ið?
S. Jóh.: — Megintækjakostur
Vegagerðarinnar er eins og hér
segir:
58 vegheflar,
24 vélskóflur,
6 jarðýtur,
38 dráttar- og vörubifreiðar,
5 mulningsvélar,
3 vélkranar,
auk fjölda minni tækja.
Auk eigin véla leigir Vega-
gerðin mikið af vinnuvélum
af ræktunarsamböndum, vinmu-
vélaeigendum og félögum vöru-
bifreiðastjóra. Hefur eigin véla-
kostur ásamt leiguvélum nægt
til þess að sinna þeim verkefn-
um, sem ekki eru boðin út.
Eins og gengur og gerist, eru
sum tæki Vegagerðarinnar
gömul, en önnur af nýjustu
gerðum. Mörg tæki gerast nú
fullkomnari en hér eru notuð;
en oft eru slík tæki ætluð til
sérverkefna, sem ekki eru það
algeng hér, að það svari kostn-
aði að kaupa þau.
Um snjómokstur er það að
segja, að meðan lítil áherzla var
lögð á að halda aðalvegum
opnum að vetrarlagi, þótti ekki
ástæða til þess að kaupa sér-
stök tæki til snjóruðnings, þar
sem algeng tæki eins og jarð-
ýtur gátu annað honum. Með
mjög auknum kröfum og skyld-
um varðandi opnun vega að
vetrarlagi varð f járhagslegur
grundvöllur fyrir því að kaupa
fullkomnari tækjakost. Nú á
Vegagerðin 17 stóra veghefla
með framdrifi og sérstökum
búnaði til snjómoksturs og 5
snjóblásara. Á vegum með
bundnu slitlagi er einnig hægt
að vinna snjómoksturinn með
góðum árangri með sérstökum
snjóplógum, sem festa má fram-
an á stóra vörubíla, og á Vega-
gerðin nokkra slíka plóga.
Tækjakostur í þessu skyni verð-
ur að sjálfsögðu aukinn, eftir
Það getur
kostað á
aðra
milljón að
opna einn
fjallveg í
eitt skipti
að vetrar-
lagi.
Að neðan
er mynd
af fram-
kvæmdum
er Vestur-
landsvegur
í KoIIa-
firði var
steyptur.
því sem fé fæst og verkefni
krefja.
Með þeirri tækni, sem nú er
til við snjóruðning í landinu,
er hægt að opna hæstu fjall-
vegi, hvenær sem er að vetrar-
lagi, þó með ærnum kostnaði
sé. Snjódýptin getur sums stað-
ar orðið 8—10 metrar. Vegna
veðurfars er það þó undir hæl-
inn lagt, hvort vegur helzt op-
inn einhvern tíma eða lokast
strax að opnun lokinni. Hér er
því um það að ræða, hve miklu
fé talið er fært að verja til
slíks, en opnun eins fjallvegar
getur kostað á aðra milljón
króna.
F.V.: — Hve dýrt er að opna
veginn norður yfir heiðar til
Akureyrar í hvert sinn, sem
það er gert á veturna, sam-
kvæmt ykkar föstu áætlun?
FV 4 1975
33