Frjáls verslun - 01.04.1975, Blaðsíða 47
Afgreiðsla Vöruflutningamiðstöðvarinnar við Borgartún.
ísleifur Runólfsson, forstjóri Vöruflutningamiðstö&varinnar:
„Ein ferð á dag norður í land
þegar mest er að gera”
— Eftir því sem ég hef komizt næst, hófust landflutningarnir um
1947. Þá byrja bílar að fara eina og eina ferð, að minnsta kosti
frá Norðurlandi og þá aðallega til þess að sækja ákveðnar vörur
eða flytja til Reykjavíkur, sagði ísleifur Runólfsson, forstjóri
Vöruflutningamiðstöðvarinnar í upphafi máls síns.
ísleifur Runólfsson, forstjóri
Vöruflutningamiðstöðvarinnar.
Milli 1950 og 1960 fjölgaði
bílunum smám saman og þeir
voru jafnframt yfirbyggðir, því
að í ljós kom, að útilokað yrði
að flytja þessar vörur undir
segldúkum eins og áður hafði
verið gert. Um áramótin 1960—
61 tekur sig svo saman tólf
manna hópur í þessari stétt og
ákveður að reyna að festa sér
lóð hér í Reykjavík fyrir vöru-
flutningamiðstöð. Þeir voru
fyrir löngu búnir að gera sér
grein fyrir, að útilokað væri að
veita þá þjónustu, sem nauð-
synleg var, án þess að hafa
góða móttökustöð hér á íteykja-
víkursvæðinu.
VÖRUFLUTNINGA-
MIÐSTÖÐ STOFNUÐ
Við stofnun Vöruflutninga-
miðstöðvarinnar urðu breyt-
ingarnar geysimiklar enda hef-
ur það sýnt sig í þeim auknu
flutningum, sem komið hafa til
okkar á undanförnum árum. Ég
tel, að nú sé starfsemin vel við
unandi. Við förum t. d. tvær
ferðir vikulega að lágmarki,
norður í land ef fært er á ann-
að borð, og allt upp í eina ferð
á dag.
Um vandamál í samskiptum
vöruflutningamiðstöðvarinnar
og heildverzlunarinnar vil ég
aðeins segja, að mér finnst
samstarfið hafa gengið sérstak-
lega vel og ég man ekki eftir
neinum vandamálum, sem hafa
verið svo mikil, að við hefðum
ekki getað leyst þau á viðun-
andi hátt fyrir báða.
Þó langar mig til að drepa á
nokkur atriði í þessu sambandi.
EKKI BÚIÐ NÆGILEGA
VEL UM VÖRUNA
Áberandi er, að mönnum
finnst svo lítið skemmast í
flutningi með bílunum, að mér
er stundum farið að ofbjóðia,
hve lítilvægar umbúðirnar um
vörurnar eru stundum hjá
heildsölunum. Ég get nefnt sem
dæmi harðplast og jafnvel syk-
ur, sem segja má að sé flutt
með okkur í sömu umbúðum og
varan stendur í verzluninni.
Þá er það ákaflega mikilvægt
atriði að merkja vörurnar vel,
því að léleg merking er aðal-
valdur þess, að varan fari í
einhvern rugling eða tapist.
Póstkröfusendingarnar hafa
alltaf valdið okkur miklum erf-
FV 4 1975
47