Frjáls verslun - 01.04.1975, Blaðsíða 95
t. d. mengunarvarnatæki, sem
taka mun minna af vélarork-
unni en önnur þekkt mengun-
arvarnatæki, sem notuð hafa
verið til þessa. Hann hefur tvö-
falt styrkt stálhús, sem hægt
er að innrétta fyrir allt að sjö
manns, eldsneytisgeyma fyrir
135 lítra, styrkta dempara og
f jöðrun, og elektróníska
kveikju, sem gerir bílinn gang-
vissari. Beygjuradíus er aðeins
35,4 tommur. Bíllinn kemur
hingað með átta strokka vél,
318 rúmtomma, vökvastýri,
aflhemlum og fjögurra gíra
kassa eða sjálfskiptingu. Um
síðustu mánaðamót kostaði sá
beinskipti 1680 þúsund en hinn
1730 þúsund. Sími hjá umboð-
inu er 84366.
Hagkvæmni og sparnaður eykur
veg Fiats -127
Nú á tímum hagkvænmi og
sparnaðar, hefur vegur Fiats
127 vaxið verulega, ekki hvað
síst hérlendis sem best sést af
fjölda þessara híla hér á göt-
unum. Framleiðsla Fiat 127
hófst 1971 og leysti hann þá
Fiat 850 af hólmi. Fiat 127 er
m,un þróaðri bíll en fyrirrennari
hans, hann er rýmri, skráður
fimm manna, breiðari, liggur
betur, og hefur framhjóladrif,
svo eitthvað sé nefnt.
Hann er fáanlegur tveggja
dyra og einnig þriggja. í síðara
tilvikinu er hægt að leggja bak
aftursætisins fram og sameina
þannig allt rými fyrir aftan
framsæti. Þannig getur bíllinn
tekið mikinn varning enda er
afturhurðin vel rúm. Vélin er
47 DIN hestöfl, en þrátt fyrir
lága hestaflatölu gefur hún
létta vinnslu á háum snúnings-
hraða og svo er bíilinn ekki
nema 705 kíló.
Að sögn sölumanns hjá
umboðinu, eru tvö atriði eink-
um mikilvæg varðandi vinsæld-
ir þessa bíls hér, að slepptum
eiginleikum bílsins sjálfs, en
það er verðið og benzíneyðslan.
Um síðustu mánaðamót kostaði
tveggja dyra bíllinn 680 þús-
und og sá þriggja dyra 712
þúsund, tilbúnir til skrásetn-
ingar. Hérlendis eyðir hann sjö
til átta lítrum af benzíni á 100
kílómetrana.
Umboðsaðilli er Fiat einka-
umboð á íslandi, Davíð Sigurðs-
son h/f, Síðumúla 35 og sím-
arnir þar eru 38845 og 38888.
Brother rafritvélin er framleidd hjá stærstu rit-
vélaframleiðslu heims, Brother International í
Japan. Umboðsaðili hér er Mímir hf., Skóla-
vörðustíg 23, sími 11372 og 86153 að Klettagörð-
um 1.
Brother 6213 hefur 33 sm valslengd, sjálfvirka
vagnfærslu og línuskiptingu, sjálfvirka vagn-
færslu áfram, fullkominn dálkastilli, 3 sjálf-
virka lykla og % línubil. Einnig er tvílitt lít-
band fáanlegt. Þá hefur vélin frjálst línubil og
5 línubil.
Hillebrand spjaldskrárkassar eru framleiddir hjá
Hillebrand Leuchten í Vestur-Þýzkalandi og er
umboðsaðili Borgarfell hf., Skólavörðustíg 23.
Sömu símanúmer. Spjaldskrárkassarnir fást í
þrem DIN-stærðum A4, A5 og A6. en einnig í
aukastærðum ásamt hjólaborðum.
FV 4 1975
95