Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1975, Síða 21

Frjáls verslun - 01.04.1975, Síða 21
- I kjölfar umræöna um CIA: Símahleranir og persónunjósnir stundaðar víða um heim Víða um lönd er litið á njósnir og símahleranir sem „daglegt bra,uð“, og raunar má segja, að þessi mál hafi ekki vakið athygli almennings fyrr en í Watergatemálinu, sem frægt er að endemum. Bandaríkjamenn eru reiðir út í hinar ýmsu ríkisstofnanir, eins og t. d. CIA og FBI, fyrir að stunda njósnir um einstaklinga þar í landi, oft á tíðum í vafasömum tilgangi. Bandarískir fjölmiðlar hafa fjallað mikið um þessi mál á undanförnum mánuðum, en það hefur leitt til þess, að fólk víða um lönd gefur njósnamálum nú meiri gaum en áður í heimalönd.um sínum. í ,S-Ameríku er mönnum t. d. gefið eftirfarandi heillaráð: ,,Ef málefnið er viðkvæmt, ræddu það þá alls ekki í síma“. í Vestur-Þýzkalandi hefur niður- staða skoðanakönnunar gefið til kynna, að einn af hverjum fimm borgurum landsins trúir því, að síminn hans sé hlerað- ur. Ríkisstjórnin í Bonn segir, að það sé alls ekki rétt. Kan- adísk þingnefnd, sem kannaði svipað mál fyrir skömmu, komst að raun um, að hlutfalls- tala símahlerana er mun hærri þar í landi en í Bandaríkjunum. Frönsk og itölsk stjórnvöld hafa nýverið breytt landslögum um njósnir gegn einstaklingum og gert þau talsvert strangari en verið hefur. íbúar þessara tveggja landa eru samt tor- tryggnir í garð yfirvalda í þess- um efnum. Fyrrverandi starfs- maður frönsku gagnnjósna- deildarinnar lét nýlega 'hafa eftir sér: „Það eru fleiri þús- und Watergate-mál í Frakk- landi, en vegna þesss að þau hafa verið betur framkvæmd en í Bandaríkjunum, er ekki teljandi hætta á hneykslismál- um“. Fyrir skömmu kynntu fréttamenn bandaríska viku- ritsins „U. S. News and World Report“ sér þetta vandamál nú- tímans, og hér á eftir fara í stórum dráttum niðurstöður könnunarinnar. OTTAWA: SÍMANJÓSNIR STUNDAÐAR, EN ÖLLUM VIRÐIST SAMA Símahleranir og elektrónísk- ar njósnir skipta hundruðum, ef ekki þúsundum í Kanada. Tala hlerana er mun hærri í landinu, en í Bandaríkjunum, segir í skýrslu laganefndar þingsins, sem gerð var í júlí 1973. Aðallega er njósnað um menn, sem álitnir eru eiga að- ild að glæpa- og undirróðurs- starfsemi. Auk þess hefur ver- ið njósnað um fréttamenn, verkalýðsleiðtoga, embættis- menn dómsvaldsins, sveitar- stjórnarmenn og jafnvel þing- menn. Fram til 1. júlí 1974, þegar ný lög um verndun einkamála — Afsakið. varðstjóri. Það rofnaði sambandið. Hvaða númer voruð þér aftur að hlera? (Skop- mynd úr kanadísku blaði). FV 4 1975 21
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.