Frjáls verslun - 01.04.1975, Síða 46
AUSTURVEGI 11
Sími 99-1660
SELFOSSI
RAKARASTOFA
D Snyrtivörur
í úrvali
TEPPASALA
n Val hinna
vandlátu
VefaríHH
VERZLUN
D Ritföng
n Leikföng
D Sportvörur
skapast hefir grundvölur fyrir
starfrækslu sérstakra áætlunar-
ferða með vörur eingöngu í
mun ríkari mæli en nú er fyrir
hendi. Sá dagur mun eflaust
koma, en ekki vil ég á þessu
stigi spá í það hve langt hann
sé undan. Einn er sá vandi, sem
veldur meiri erfiðleikum fyrir
okkur íslendinga á sviði vöru-
flutninga en víða annarsstaðar
á sér stað, en það er einstefnan,
þ. e. a. s. hið ójafna hlutfall
milli flutninganna til og frá
landinu annarsvegar, og einn-
ig milli höfuðborgarinnar og
landsbyggðarinnar. Hjá ís-
lenzku flugfélögunum eru þessi
hlutföll þannig, að rúm 8Q%
millilandaflutninganna eru til
landsins og tæplega 20% frá
því og á innanlandsleiðum eru
tæplega 84% flutninganna frá
höfuðborginni út á land og að-
eins rúm 16% til hennar. Ef-
laust er þetta einnig vandamál
þeirra, sem annast vöruflutn-
inga á sjó og landi, en hvort-
tveggja er, að ég geri ráð fyrir
að þessi hlutföll séu enn óhag-
stæðari hjá okkur en þeim, og
svo hitt, að af ýmsum ástæð-
um, sem hér yrði of langt mál
að fara út í, verður nauðsyn-
legt, ef koma á áætlunarflugi
með vörur eingöngu á og slík
starfsemi á að skila arði, að
stefna að hærri hleðslunýtingu
flugvélanna en þörf mun fyrir
þegar um önnur flutningatæki
er að ræða.
VARAN SÓTT OG SEND
Þótt íslenzku flugfélögin hafi
enn ekki náð lengra á sviði
vöruflutninga en raun ber vitni,
hefur þó margt áunnist og þjón-
ustan við viðskiptavinina verið
aukin mjög verulega á síðustu
árum. Sérstaklega hafa ýmsir
þjónustuþættir verið auknir á
sviði innanlandsflugsins, enda
um frjálsara höfuð að strjúka
í þeim efnum en á sviði milli-
landaflugsins, þar sem afgreið-
sla varanna tengist störfum toll-
þjónustu og banka. Gefst nú
flytjendum innanlands kostur á
að fá vöruna sótta og senda
gegn vægu gjaldi auk þess sem
þeir geta sent vöruna í eftir-
kröfu. Þá hefir Flugfélagið
komið á og heldur uppi ferðum
bifreiða í samstarfi við um-
ferðardeild pósts og síma, frá
mörgum flugvallanna til nær-
liggjandi byggðarlaga og eru
vörur fluttar í þeim ferðum,
auk farþega. Auk þessa hefur
félagið nú komið á, í takmörk-
uðum mæli, sérstökum áætlun-
arferðum með vörur eingöngu
milli Reykjavíkur annarsvegar,
og ísafjarðar, Akureyrar, Egils-
staða og Vestmannaeyja hins-
vegar.
FARÞEGAR HAFA
FORGANG
Vandamál þau, sem við glím-
um við þegar um er að ræða
flutning vöru erlendis frá eru
að meginstofni til fólgin í því,
sem áður er fram komið, að far-
þegar hafa forgang framyfir
vörur og rými því stundum ekki
í samræmi við flutningsþörfina,
sem oft er mjög breytileg og
óviss. Sérstaklega skapast
stundum erfiðleikar þegar
flutningar eru í hámarki, svo
sem fyrir jólin, en þá er oftast
brugðið á það ráð að fara auka-
ferðir, jafnvel þótt þær séu ekki
arðbærar, og stíflan losuð þann-
ig-
PLÁSSLEYSI
í VÖRUGEYMSLUM
Við höfum einnig átt við tals-
verðan vanda að etja vegna
plássleysis í vörugeymslum,
ekki sízt á síðasta ári. Allt slíkt
veldur innflytjendum erfiðleik-
um, og ber að harma, en slík
vandamál reynast erfið úrlausn-
ar þegar innflutningshættir
breytast snögglega, eins og oft á
sér stað hér á landi.
Flugleiðir h.f. láta nú sér-
fræðing vinna að könnun og til-
lögugerð um stærð og fyrir-
komulag nýrrar vöruafgreiðslu,
sem vænta má að reist verði
á hentugum stað á Reykjavík-
ursvæðinu. Yrði hér um að
ræða einn þátt, veigamikinn
þó, í því að bæta þjónustuna.
Er það von mín að það mál nái
fram að ganga innan mjög langs
tíma.“
46
FV 4 1975