Frjáls verslun - 01.04.1975, Qupperneq 53
ir hafa engar tryggingar keypt
og virðast hafa talið, að Skipa-
útgerðin bæri ábyrgð á öllu
saman. Þetta er mikið vanda-
mál og ég veit reyndar ekki,
hvernig við förum með þetta
mál. Skipaútgerðin er í krögg-
um og flutningsgjöldin lág,
þannig að hún getur ekki borið
ábyrgð á hvers konar tjónum,
sem verða í flutningi. Því mæli
ég eindregið með því, að menn
kaupi tryggingar á farmi.
Til fróðleiks vil ég segja ykk-
ur frá því, að Herjólfur flutti
á sL ári um 800 bíla til og frá
Vestmannaeyjum. Vátrygginga-
félögin vilja fá í sjótrygginga-
áhættu í þessu sambandi 2,25%.
Útkoma dæmisins svarar til
þess, að 18 bílar væru gjöreyði-
lagðir. Ef bíllinn er metinn á
800 þúsund, sem varla er mikið
núna, er upphæðin 14,4 millj-
ónir.
Hvað haldið þið nú, að Her-
jólfur fái mikil flutningsgjöld
fyrir þessa bíla, sem hann flutti
í fyrra? Eina milljón. Og samt
ætlast viðskiptamennirnir mjög
til þess, að við borgum af þess
ari einu milljón alla flutnings-
áhættu af bílunum, sem vá-
tryggingafélögin vilja fá 14,4
milljónir fyrir.“
# Almennar
umræftur
Þessu næst hófust almennar
umræður á fundinum og var
fjölmörgum spurningum beint
til framsögumanna. Verður
nokkurra þeirra getið hér á eft-
ir:
G'unnar Eggertsson, fram-
kvæmdastjóri, sagði, að miklir
erfiðleikar hefðu verið í innan-
landsflutningum í desembej- og
janúar sl. einkanlega vegna
mikilla snjóa norðanlands.
Skipaútgerð ríkisins hefði hald-
ið sinni áætlun engu að síður
með hálfsmánaðarferðir en
Eimskip sent þrjú skip til Ak-
ureyrar á einni viku. Gunnar
spurði til hvers Skipaútgerðin
væri.
Guðjón Teitsson sagði um
flutningamöguleika Skipaút-
gerðarinnar, að hún væri bund-
in af fjárlögum. Samkvæmt
þeim 'hefðu flutningsgjöldin átt
að hækka um 40% frá áramót-
um og hafa í för með sér 30
millj. króna hækkun á árinu,
en þetta væri þó ekki enn kom-
ið til framkvæmda. Frá því að
fjárlög voru undirbúin hefði
olían fyrir þrjú skip útgerðar-
innar hækkað um 19,4 milljón-
ir yfir árið. Skipaútgerðin er
svo bundin af fjárlögum, að
hún getur ekki tekið aukaskip
á leigu, þó að forstöðumenn-
irnir gjarnan vildu.
# Erlend
leiguskip
Haraldur Haraldsson, útflytj-
andi, tók næstur til máls og
vakti athygli á því, að á Is-
landi væru 38 flutningaskip,
þar af 64% í eigu Eimskips, SÍS
ætti 14%, Hafskip 8% og hin
minni skipafélög, sex talsins,
ættu 8 skip eða 14% af flotan-
um. Ræðumaður benti á aði
leiguskip væru lítið notuð í
flutningum hingað og héðan
vegna þess, að þau hefðu ekki
aðgang að tækjum og vöru-
skemmum á borð við skip ís-
lenzku félaganna. Erlendis
stæði þetta til boða án tillits
til hvaða félagi skipin til-
heyrðu.
Taldi ræðumaður, að aðistaða
af þessu tagi í Reykjavík
myndi stuðla að lægri flutn-
ingsgjöldum af stærri förmum,
svo sem járni, timbri og sekkja-
vöru, sem yrði boðið út til
flutnings. Þá taldi ræðumaður
að innflytjendur hér á landi
væru ókunnugir leigusamning-
um en lægri flutningsgjöld
myndu leiða til lægra verðs á
vöru til neytanda.
Haraldur nefndi, að fragt á
mjöli til útflutnings væri $33
á tonnið frá höfnum hér á
landi til Rússlands með Eim-
skip. Hann spurði Óttarr Möll-
er, hvað Eimskip myndi hins
vegar taka fyrir flutning á rúg-
mjöli, timbri eða járni frá
Rússlandi til fslands.
í þessu sambandi gat ræðu-
maður þess, að pólskt skip væri
fáanlegt hingað til lands tómt
til að taka 170 tonn af mjöli á
þremur Austfjarðahöfnum og
gæti flutt það til Gdynia á $26
fragt.
Óttarr Möller sagði, að öll-
um væri frjálst að taka leigu-
skip og margir hefðu reynt það
einu sinni eða tvisvar en svo
ekki söguna meir. Skipin bil-
uðu, losun og lestun drægjust
á langinn. Þau biðu kannski
þrjár vikur eftir timbrinu í
Rússlandi.
Pólverjar hefðu keypt hér
fiskimjöl og hygðust flytja það
sjálfir. Það væri vel til í dæm-
inu, að þeim tækist að finna
einhvers staðar smáskip, sem
væri í vandræðum með flutn-
ing, og gæti gert þetta. Það
væri hins vegar jafnalgengt, að
engin leið væri að fá slík skip
fyrir þetta verð. Samanburður
á flutningsgjöldum væri ákaf-
lega erfiður og það væri ólíku
saman að jafna ferð með einn
tiltekinn farm frá landinu eða
til þess, og svo hins vegar
reglubundnum siglingum allt
árið.
Óttar sagði, að ósamræmi
hefði skapazt milli flutnings-
gjalda vegna þess, að gengi er-
lendra gjaldmiðla hefði sífellt
tekið breytingum. Þýzka mark-
ið hefði hækkað stöðugt en
pundið lækkað. Eimskipafélag-
ið væri ósátt við flutningsgjöld-
in frá Evrópu eins og þau skipt-
ast milli landa. Samkvæmt
verðlagsákvæðum mætti félag-
ið ekkert hækka en það mætti
lækka. Ef flutningsgjöldin
væru frjáls myndi félagið sam-
ræma þau, af því að þau eru
ekki sanngjörn.
Ræðumaður ítrekaði, að öll-
um væri frjálst að taka leigu-
skip fyrir timburfarm, salt og
fyrir heila farma af járni. Fyr-
ir heilan farm af timbri þyrfti
ekkert vörugeymslupláss.
f stykkjavörunni horfði mál-
ið allt öðruvísi við. Nú um
þessar mundir koma skip Eim-
skipafélagsins hálfhlaðin frá
Hamiborg og Felixstowe, þó að
þau hafi verið full í sumar.
Hafi verið afgangur í sumar,
væri ljóst hve slæm útkoman
yrði nú.
FV 4 1975
53