Frjáls verslun - 01.04.1975, Blaðsíða 63
Ennfremur ýmsar opinberar
stofnanir svo sem Orkustofnun,
Vegagerð ríkisins, Land'svirk-
jun og rafveiturnar. Sýni eru
tekin úr hverri steypu í stærri
mannvirki og sagði Ólafur að
niðurstöður af þeim athugunum
hafi jafnan sýnt að steypan sé
jöfn að gæðum. Einstaklingar í
kauptúnum Suðurlands og
bændur ei'u einnig miklir og
vaxandi viðskiptavinir stöðvar-
innar.
Steypustöð Suðurlands h/f og
Steypustöðin h/f í Reykjavík
hafa með sér samstarf, og sagði
Ólafur að þessi starfsemi fyrir
austan væi’i útilokuð án sam-
starfs við fyrirtæki á sama
sviði, sérstaklega viðvíkjandi
efnisvinnslu. Einnig skiptast
fyrirtækin á steypubílum eftir
onnum hverju sinni, sem bætír
aðstöðu beggja.
Að lokum sagði Ólafur að
með tilkomu brúar yfir Ölfus-
árósa sem nú er mikið hags-
munamál á Suðurlandi, batnaði
þjónustuaðstaða stöðvarinnar
enn, auk þess sem Ólafur sagð-
ist gjarnan vilja laga steypuna
í þá framkvænd!
Ólafur Haraldsson, ráðgjafi 3K - samsteypunnar:
Framleiðsluvörurnar
uppseldar til hausts
3K er framlciðslusamstarf þriggja kaupfélaga á sviði trésmíða,
kaupfélaga Árnesinga, Rangæinga og Skaftfellinga. Þessi kaup-
félög hafa öll rekið trésmiðjur lengi, en rekstrargrundvöllur
þeirra var orðinn mjög örðugur, því að smiðjurnar byggðu að
mestu á svonefndri þjónustuvinnu fyrir héruðin. Með efni, sem
komið hefur á markað í seinni tíð, og ódýrum verkfærum hefur
þróunin orðið sú, að menn gera hlutina sjálfir í mun ríkara mæli
en áður var.
Til þess að tryggja og jafna
í’ekstur þessara trésmiðja varð
að leita nýira verkefna og upp
úr því varð 3K samstarfið til.
Þetta kom fram, er FV ræddi
við Ólaf Haraldsson, sem er ráð-
gefandi aðili fyrir smiðjurnar
þrjái’, en hann hefur aðsetur á
Selfossi. Smiðjurnar eru reknar
sem þrjár sérstakar einingar
með sameiginlega hagsmuni
fyrir augum. Kaupfélagsstjói’-
ar viðkomandi kaupfélaga
mynda stjórn samsteypunnar.
STÖÐLUN OG NÁIÐ
SAMSTARF
Samstarf þetta felur í sér, að
ákveðnar framleiðslugreinar
eru unnar á hverjum stað fyrir
sig og hvert verkstæði verður
sérhæft. í sambandi við véla-
kaup er gengið út frá þessari
stöðlun og vei’kstæðin hafa
einnig skipst á vélum, eftir því
hvar hver vél er hagkvæmust.
í vissum tilvikum er hluti ein-
hvers ákveðins hlutar unninn á
einum staðnum en lokiði á öði'-
um stað, innan samsteypunnar.
Þannig er t. d. viss gerð stóla
smíðuð austur í Vík, en bólst-
ruð á Hvolsvelli. Vélakostur er
mestur í smiðjunni á Selfossi
og þar er því aðallega unnin
vélavinna.
Annar þáttur þessa samstarfs
er rekstur söluskrifstofu og út-
stillingar í Reykjavík. Að sögn
Ólafs hefur ekki verið lögð
áhersla á beina sölu þaðan,
heldur fremur heildsölu, nema
Sýnishorn af framleiðslu 3K.
hvað eldhúsinnréttingar snertir.
Ástæðan er sú, að álagning á
eldhúsinnréttingum er svo lítil,
að þær eru ekki seldar í hús-
gagnaverslunum. Húsnæðið
sem 3K hefur nú við Hátún,
er þegar orðið of lítið til að
stilla út öllum framleiðsluvör-
unum og í sumar verður opnað
nýtt húsnæði að Suðurlands-
braut 18.
FRAMLEIÐNI AUKIN
Um viðtökur framleiðsluvara
3K sagði Ólafur að t. d. í eld-
húsinnréttingum væi’i útselt
alveg fram í september. Stöð-
ugt er unnið að endurbótum
framleiðsluháttanna til að auka
framleiðni, og sagði hann að
mikill árangur hefði náðst í því
innan samsteypunai’.
Að sögn Ólafs eru eldhúsinn-
réttingar mjög samkeppnisfæi'-
ar hvað verðlag snertir. Miðað
við' sérsmíðaðar innréttingar
frá /3K og öðrum, skiptir verð-
FV 4 1975
63