Frjáls verslun - 01.04.1975, Side 77
ónákvæmni í lykiltölunum.
Þær lykiltölur, sem koma
fram, eru þessar: Framlegðar-
stig, afkastastig, veltuhraði
fjármuna, hagnaðarhlutfall og
arðsemi. Auk þess var settur
upp rekstrarreikningur fyrir
meðalfyrirtæki í iðngreininni
árið 1973. Þannig geta fyrir-
tæki borið sína reikninga sam-
an við þennan meðalreikning og
séð hvernig þau standa sig, í
samanburði við meðaltal.
Rekstrarreikningurinn er settur
upp bæði í krónum og hlutfalls-
tölum. Þá eru einnig sýndir
helstu kostnaðarliðir, sem hlut-
fall af veltu.
Samræming á verðútreikningi.
„Þegar ég var að vinna að
þessu kom Ragnar Eðvaldsson
að máli við mig, en hann er
núverandi formaður Landssam-
bands bakarameistara. Hann
var að vinna að samræmingu á
verðútreikningum bakara. Það
varð að samkomulagi að ég
gerði yfirlit yfir helstu aðferðir
við verðútreikninga og tillögu
um eyðublað fyrir verðútreikn-
inga. Þar eru tekin fyrir helstu
kerfi við verðlagningu. Það fer
eftir aðstæðum í fyrirtækinu,
hvaða aðferð hentar best. Án
tillits til þess hvaða aðferð er
valin, verður að tryggja að
henni sé ekki fylgt blindandi,
því að hér er aðeins um að ræða
hjálpartæki. Með hæfilegu
millibili verður að meta hvort
það fullnægir þörfum og mark-
miðum fyrirtækisins.
Umhverfi okkar er háð stöð-
ugum breytingum, sem fylgja
ekki staðlaðri forskrift.
Staðlað bókhaldskerfi.
„Nú er í undirbúningi spurn-
ingaeyðublað fyrir næstu lykil-
tölur, fyrir árið 1975. Þá hefur
öllum meðlimum í Landssam-
bandinu verið send tillaga að
stöðluðu bókhaldskerfi, sem
þeim er frjálst að nota, til að
endurbæta bókhald sitt. Stuðst
er við norskan staðal NS-4100,
sem verður væntanlega íslensk-
ur staðall innan skamms. Iðn-
þróunarstofnun íslands hefur
unnið að því máli og má vænta
niðurstöðu þeirrar vinnu innan
skamms.“
Hraðfrysting
Söltun
Skreiðarframleiðsla
>•
Is- og beitusala
Útgerð
SIMAR:
Hraðfrystihús 1083
Skrifstofa 1080
Fiskmóttaka 1084
Ægisgötu 1 og 2.
Skrifstofa Bárugötu 2
Pósthólf 105
FV 4 1975
77