Frjáls verslun - 01.04.1975, Síða 85
Á flugvéla-
stæðinu á
Luxem-
borgar
flugvelli.
DC-8-63-
þotur Air
Bahama og
Loftleiða
við flugaf-
greiðsluna.
Fjær
standa
ffugvélar
Luxair.
Þotur
Loftleiða
munu fara
12 sinnum
í viku
yfir
Atlants-
liafið til
Luxem-
borgar
á hávertíð-
inni í
sumar.
flutningana", sem Loftleiðir
voru frægar fyrir á sínum
tíma, sagði hann, að þeir væru
úr sögunni eftir að unglinga-
fargjöldin voru lögð niður og
einnig væri æskan farin að
spekjast, jafnt austan hafs sem
vestan. Hann viðurkenndi hins
vegar, að þessi skrautlegi hóp-
ur, sem oft flaut úr Loftleiða-
vélum í Luxemborg og lagði
undir sig flugstöðina og næsta
nágrenni á augabragði, hefði
verið farinn að fara í pirrurnar
á hinum heiðvirðari Luxem-
borgurum, og óneitanlega hefði
þetta bitnað á afstöðu þeirra til
félagsins. Nú eru unglingafar-
gjöld aftur væntanleg en
Aakrann kvaðst ekki búast við
neinum vandamálum á borð við
þau fyrri, þegar hippafólk sló
upp tjaldbúðum á snyrtilegum
grasflötunum við flugvöllinn í
ferðum án fyrirheits. Á máli
íslendinga í Luxemborg var
flugstöðvarsvæðið kallað „Hót-
el Gras“ í þá daga.
# Starfsmenn
69
að tölu
Þegar Aakrann opnaði skrif-
stofu Loftleiða í Luxemborg 1.
maí 1955 voru þar tveir starfs-
menn auk hans, — sölumaður
og ritari. Þá var Luxemborgar-
flugið óreglubundið og lítið
hægt að stuðla að alvarlegri
markaðsuppbyggingu, þar eð
ferðir lágu niðri allan veturinn.
Sumarið 1955 voru Loftleiða-
farþegar í Luxemborgarflugi
922 talsins. Þeir fóru úr 597
upp í 8,647 á milli ára 1960—61
og ári seinna voru þeir rúmlega
30 þús. en þá var ferðunum
líka í fyrsta sinn haldið uppi
allt árið. Síðan fór farþega-
fjöldinn stighækkandi, ár frá
ári, og náði hámarki 1973 er
hann var 238,407. Á því sama
ári voru starfsmenn félagsins í
Luxemborg 180 talsins, þar af
um 100 í tæknideild. í fyrra
var svo ákveðið að Cargolux
tæki að sér rekstur tæknideild-
arinnar og fækkaði starfsmönn-
um Loftleiða mjög við það. Eru
þeir nú 69 að tölu af 12 þjóð-
ernum, flestir Luxemborgarar
en Islendingar eru þrír.
Skrifstofan í Luxemborg
hefur sölusvæðd, sem nær yfir
Luxemborg, Holland, Grikk-
land, Tyrkland, Miðausturlönd,
fjarlægari Austurlönd og Afr-
íku. Áður voru Belgía og
Frakkland líka á sölusvæðinu,
en skrifstofur í þessum löndum
heyra nú beint undir aðalskrif-
stofuna í Reykjavík.
FV 4 1975
85