Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1976, Page 7

Frjáls verslun - 01.03.1976, Page 7
í smiln mðli # Lllarvörurnar seljast vel Útflutningur ullarvara heí'ur aukist ár frá ári og enn er fyrirsjáanleg aukn- ing á næstu árum. Árið 1975 voru fluttar út ullarvörur fyrir 1403 millj. ísl. króna, hafði aukist úr 838 millj. 1974. Séu þessar tölur færðar á meöal- gengi hvers árs í dollurum nemur út- flutningsverðmætið 7,6 millj. dollara 1974 og um 9 millj. dollara 1975, sem svarar til 20 % aukningar. Velta sauma- og prjónastofa, sem framleiða til útflutnings, var á síðast- liðnu ári 400—450 millj., sem jafngild- ir verðmæti ársafla 3 velbúinna skut- togara. Að framleiðslunni starfa 130 manns. Fjárfestingin í þessum fyrir- tækjum er um 295 millj. króna. # Viöskipti við Portúgal Portúgal er nú einn mikilvægasti út- flutningsmarkaður okkar. Jafnframt hefur komiö 1 ljós, að vegna vaxandi gjaldeyriserfiðleika Portúgala telja þeir sig verða að knýja á um að við kaupum meiri vörur af þeim en nú er gert, til þess aö þessi viöskipti geti haldið áfram með eðlilegum hætti. Verzlunarráð Islands hefur bent fé- lagsmönnum sínum á, að innflutn- ingur þaðan þjónar jafnframt útflutn- ingshagsmunum okkar. # Vanskilalisti Öllum félagsmönnum Verzlunar- ráðsins er nú gefinn kostur á að fá sendan mánaðarlega lista yfir víxla- vanskil sem fram aö þessu hefur ein- göngu verið sendur til bankanna. Þessi þjónusta verður endurgjaldslaus. Einnig hefur verið ákveðið, að fram- vegis geti allir félagsmenn fengið munnlegar upplýsingar um ýmis at- riöi, sem varða lánstraust viöskipta- vina þeirra, annað hvort á skrifstofu ráösins eöa símleiðis. Þessi þjónusta er einnig endurgjaldslaus og aðeins fyrir félagsmenn. # Aukin viftskipti vift Lngverja Ungverska samvinnusambandið og Samband ísl. samvinnufélaga, hafa nú gert samkomulag um það, að tekin verði upp gagnkvæm viðskipti á milli þessara tveggja samvinnusambanda. Helztu íslenzkar afuröir, sem gert er ráö fyrir, að Sambandið selji til Ung- verjalands, eru iðnaðarvörur frá verk- smiðjunum á Akureyri, fiskimjöl og e.t.v. fleiri sjávarafurðir. Það sem reiknaö er meö, að Sambandið kaupi frá ungverska samvinnusambandinu, eru fyrst og fremst nýir ávextir og vefnaöarvörur, og auk þess mun veröa athugað með kaup á ýmsum öðrum vörum, eftir því sem markaðsástæður hér heima leyfa. # Aukning í flakasölu Eins og áöur hefur verið skýrt frá hér í Sambandsfréttum, varð mikil aukning á freöfisksölu hjá Iceland Products í Bandaríkjunum á síðast liönu ári. Nú liggja fyrir endanlegar sölutölur ársins, og sýna þær, að aukn- ing er jafnvel enn meiri en ætlað var. Hefur komið í ljós, aö salan á öllum tegundum fiskflaka jókst á árinum um 65 af hundraði, en sé litið á þorskflök sérstaklega, nemur aukningin 71 af hundraði. Þessi mikla söluaukning hefur leitt til þess, að birgöir Sambandsfrystihús- anna af þorskflökum hafa minnkað verulega. I janúar mánuði fóru bæöi frystiskip Skipadeildar, ms. Skaftafell og ms. Jökulfell, vestur um haf full- hlaðin freðfiski. I lok janúar voru birgðir í húsunum því í algjöru lág- marki.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.