Frjáls verslun - 01.03.1976, Blaðsíða 67
íþróttir:
Skíðastökkpallur
í miðjum bænum
— Á skíðalandsmótinu 1975
áttu Ólafsfirðingar alla ung-
lingameistara í göngu og
stökki og helst ætlum við að
endurtaka þetta á landsmótinu
1976 sagði Björn Þór Ólafsson
íþróttakennari á Ólafsfirði er
hann var heimsóttur fyrir
skömmu.
Björn Þór hefur verið okk-
ar helsti skíðastökkvari á und-
anförnum árum og hefur vel-
gengni hans i stökkinu sjálf-
sagt átt sinn þátt í því að
vekja áhuga ungra Ólafsfirð-
inga á þessari skíðagrein, á-
samt því að Ólafsfjörður getur
státað af því að hafa varan-
legan skíðastökkpall inni í
miðjum bæ.
— Ólafsfirðingar og Sigl-
firðingar eru þeir einu sem
eitthvað fást við skiðastökk,
sagði Björn Þór. — Við erum
nú að vonast til að fá annan
stærri stökkpall yfir í Kleifar-
horni, en þar höfum við æft.
á snjópöllum í vetur. Ólafs-
fjarðarkaupstaður og íþróttafé-
lagið standa saman að byggingu
þessa palls og við erum að
vona að honum verði komið
upp á næsta sumri. Það kemur
til að gera aðstöðuna einstaka.
Sigfirðingarnir eru líka að
koma sér upp palli, sem gæti
verið kominn í gagnið í vetur.
Á Ólafsfirði er mikill áhugi
á íþróttum, en skíðaíþróttin
situr þar í fyrirrúmi. — Mest
eru það norrænu grpinarnar
ganga og stökk sem hér eru
stundaðar og rásmörkin í
göngukeppnum eru yfirleitt
höfð hjá barnaskólanum, sem
stendur í miðjum bænum.
Handknattleikur er mikið
stundaður af öllum aldurs-
flokkum á Ólafsfirði. íþrótta-
félagið Leiftur er með III.
deild í handknattleik. Einnig
er talsverður áhugi á fótbolta
á staðnum. — Það er búið að
ráða þjálfara fyrir Leiftur fyr-
ir næsta sumar, sagði Björn
Þór. Það er skotinn Duncan
McDonald, sem þjálfað hefur
Reyni á Árskógsströnd. Hann
ætlar að vera hjá okkur 3 daga
í viku næsta sumar og þjálfa
alla aldursflokka. Við teljum
það mjög mikilvægt að allir
aldursflokkar fái að njóta þess-
Björn Þór Ólafsson.
arar þjálfunar og vonumst til
að þannig verði varanlegur ár-
angur af þessu.
LÍTIL AÐSTAÐA FYRIR
INNANHÚSÍÞRÓTTIR
Hópur af fólki á Ólafsfirði
hefur hafið ástundun badmin-
tons sér til heilsubótar, en að-
staða fyrir innanhússíþróttir
er af skornum skammti á
staðnum. — Við erum að von-
ast til að það verði bráðlega
tekin ákvörðun um byggingu
nýs íþróttahúss, sagði Björn
Þór, — því hér vantar stór-
lega aðstöðu bæði til kennslu
og eins fyrir íþróttafélögin. En
þótt á'hugi á íþróttum sé mik-
ill hér, þá finnst mér vanta
stórlega á áhuga fullorðins
fólks á því að stunda íþróttir.
Þótt yfirleitt sé hægt að stíga
á skíðin við húsdyrnar hérna
á veturna, þá er allt of_lítið
um að fullorðið fólk bregði
sér á skíði sér til heilsubótar,
sagði Björn Þór Ólafsson að
lokum.
Hótel Selfoss
FERÐAMENN
ATHUGIÐ:
Veitingar allt árið.
Kaffiveitingar.
Ódýrir smáréttir.
Lax og silungur.
Annar heitur matur.
VERIÐ VELKOMIN.
Hótel Selfoss
SlMI 99-1230
FV 3 1976
67