Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1976, Side 57

Frjáls verslun - 01.03.1976, Side 57
IJtibú KEA: Áhugi á að hefja rekstur nýrra iðnfyrirtækja Utibúi5 greiddi 614 manns laun ■ fyrra Á launaskrá hjá okkur voru 614 manns á sl. ári og voru greiddar 175 milijónir í vinnulaun sagði Kristján Ólafsson útibússtjóri KEA á Dalvík þegar Frjáls verslun heimsótti hann fyrir skömmu. — Útibúið er hér með margs konar starfsemi, sagði Kristján. — Hér er -matvörudeild, byggingarvöru- deild, vefnaðarvörudeild, varahl'utaverslun í sambandi við bílaverkstæði fyrirtækisins og ýmsar grófari vörur eru afgreiddar af lager. Verslunardeildirnar seldu fyrir u.þ.b. 400 milljónir króna á síðasta ári. Á haustin er rekið hér slátur- hús á vegum útibúsins og tekur það hús við 13—14 þúsund fjár. Frystihús er rekið á okkar veg- um og í sameiningu við Dalvík- urkaupstað gerum við út skut- togarann Björgvin undir nafni Útgerðarfélags Dalvíkinga. Svo erum við með fiskimjölsverk- smiðju. Af þessu má sjá að þetta er umfangsmikill rekstur, enda er þetta fyrirtæki lang stærsti atvinnurekandinn á staðnum og var veltan á sl. ári um einn milljarður, sagði Kristján. EINA FRYSTIHÚSIÐ Á DALVÍK Frystihús KEA er eina frysti- húsið á Dalvík, en ýmsir aðrir aðilar verka fisk i salt. — Það sem helst háir rekstri frysti- hússins núna, sagði Kristján, — er skortur á hráefni. Meðan skuttogarinn Baldur var gerður út hér var ástandið gott, en eft- ir að hann fór berst ekki nægi- legt hráefni. En nú á Útgerðar- félagið von á nýjum togara í lok þessa árs og þá lagast þetta vonandi. Eins og er vinnum við upp afla togarans á 4—5 dög- um og bíðum svo eftir að hann komi aftur. Þetta þýðir það að við verðum að segja starfsfólk- inu upp vikulega. Með nýju samningunum varð það ennþá verra, því hér eftir þurfum við að segja öllum upp skriflega, þannig að við þurfum að hafa fjölrituð uppsagnarbréf á lager. GÓÐ VÉLVÆÐING Frystihúsið á Dalvík var byggt upp og endurbætt mikið á árunum 1972—1973. — Þetta er mjög gott lítið frystihús, sagði Kristján. — Það er vel vélvætt og öllum kröfum um hreinlætisaðstöðu og aðstöðu Kristján Ólafsson, útibússtjóri KEA. fyrir starfsfólk fullnægt. Hins vegar verður það full lítið þeg- ar nýr togari fer að leggja hér upp. Þess vegna er nú verið að gera áætlanir um stækkun hússins um 1400 fermetra. Það er líka verið að skipuleggja höfnina og hafnarsvæðið en þetta er allt unnið í samhengi við hvort annað. Þrátt fyrir miklar fjárfestingar á undan- förnum árum hefur afkoma frystihússins verið góð og út- koman réttu megin við strikið, sagði Kristján. Þótt Kaupfélagið á Dalvík sé útibú frá KEA er hér um mjög sjálfstæða rekstrareiningu að ræða. — Það má segja að við ráðum okkur að mestu sjálf hér, sagði Kristján. — Að sjálf- sögðu þurfum við að leita sam- þykkis stjórnarinnar fyrir meiri háttar fjárskuldbinding- um, en frá því ég tók við þessu 1972 hef ég aldrei orðið var við neina árekstra vegna þess að þetta væri útibú. REKSTUR í FÖSTUM SKORÐUM Að sögn Kristjáns útibús- stjóra er rekstur fyrirtækisins í fremur föstum skorðum og hefur verið lítið um stórbreyt- ingar á rekstrinum undanfarin ár. — Við erum þó alltaf að velta fyrir okkur ýmsum við- bótum og úrbótum, sagði Kristján. — Hér er t.d. að vakna áhugi fyrir því að koma upp einhverjum léttum iðnaði á vegum útibúsins. Helst hefur komið til greina að koma upp sauma- eða prjónastofu í sam- vinnu við verksmiðjur SÍS á Akureyri. Hér er tvímælalaust þörf fyrir léttan iðnað, því margar konur á Dalvík, sem hafa hug á að fá sér vinnu vilja ekki eða geta ekki farið í fisk- vinnu, en myndu grípa við ein- hverju svona. Þarna er talsvert ónotað vinnuafl um að ræða. Svona pláss byggjast upp á því að reynt sé að auka framtakið og framleiðsluna. Þá hefur fólk eitthvað að sækja á staðinn sagði Kristján Ólafsson að lok- um. FV 3 1976 57

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.