Frjáls verslun - 01.03.1976, Page 84
stiga, sem er 2.70 m á hæð og
1.60 m í þvermál kostar málm-
stigi nú kr. 182.500, en stigi
með eikarþrepum kr. 218.500.
Hægt er að fá með stigunum
smíðajárnsmunstur í handriðin
í nokkrum gerðum og form-
spennta tréhandlista.
Pallastigi í venjulegri stærð
þfið er mál á gati 2x3 m, hæð
2.70 með handriðum i stiga og
á palli kostar kr. 328.000 og er
þá átt við eikaráferð á þrepum
og handlista og smíðajárns-
munstur í handriðum.
— Hvernig er með flutning
húsmuna og stærri hluta ’um
stigana?
— Um flutning á palla-
stiganum þarf ekki að rök-
ræða, hann verður alltaf jafn
auðveldur eða erfiður, hvort
sem hann er lausþrepa eða
ekki. Um hringstigana gildir
annað.
Eins og ég hef áður tekið
fram smíðum við hringstigana í
stöðlum upp í 2.20 m og um þá
stiga er tæknilega hægt að
flytja píanó og er þá mælirkin
ekki fullur, en minni stigunum
eru að sjálfsögðu annmarkar
settir.
T.d. um stiga, sem er 1.40 m
í þvermál er hægt að flytja létt
sófasett. Sé um stærri hluti að
ræða, sem á annað borð komast
niður eða upp um hið takmark-
aða op og ætla má að ekki séu á
daglegu ferðalagi verður ein-
faldlega að taka stigann sund-
ur, því eins og ég hef bent á
sem stærsta kost þessara gerða
stiga þá er uppsetning þeirra
eins einföld og hugsast getur
og hverjum manni auðveld.
— Hefur framleiðsla stig-
anna eitthvert gildi fyrir þjóð-
arbúið, að þínu mati?
— Ég get sagt með fullum
sanni, að þessi iðnaður er gjald-
eyrissparandi fyrir þjóðarbúið.
Við áttum í harðri samkeppni
við innflutning á hringstigum
fyrir 5 árum, sem nú er sem
betur fer óþekktur. Aftur á
móti er mér ókunnugt um inn-
flutning á pallastigum.
Að lokum má segja að í þess-
um iðnaði eins og öðrum í
þessu blessaða landi okkar
verða menn að berjast algjör-
lega févana og án allrar fyrir-
greiðslu.
STOFIUAIMIR, FÉLÖG
VERZLUN ARRÁÐ
ÍSLANDS
er allsherjarfélagsskapur
kaupsýslumanna og fyrir-
tækja. Tilgangur þess er að
vinna að sameiginlegum
hagsmunum þeirra, að
styðja að jafnvægi og vexti
efnahagslífsins og efla
frjálsa verzlun og frjálst
framtak.
Verzlunarráð íslands,
Laufásvegi 36,
Reykjavík. Sími 11555.
Skrifstofan er að Hagamel 4,
sími 26850.
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur.
©
KAUPMANNASAMTÖK
ÍSLANDS
Marargötu 2.
Símar 19390-15841.
FÉLAG ISLENZKRA
STÓRKAUPMANNA
er hagsmunafélag stórkaupmanna
innflytjenda og umboðssala.
FÉLAG ÍSLENZKRA STÓRKAUPMANNA
TJARNARCÖTU 14 -- REYKJAVtK — StMI 10650.
ÖL&
G0S HF.
AUÐBREKKU 36
KÓPAY0GI
SÍMAR:
41090-41114
84
FV 3 1976