Frjáls verslun - 01.09.1976, Síða 20
ault-Breguet og ríkisfyrirtækið
Aerospitale smíða og selja far-
þegaþotuna Mercure-200, sem
er stækkuð og arðsamari 174
sæta endursmíði af þotunni
Mercure-100 frá Dassault, sem
er 150 sæta vél. Mercure-100
eru tveggja hreyfla, meðal-
drægar en á átta árum hafa
aðeins 10 þeirra verið seldar
og allar franska ríkisflugfé-
laginu Air Inter. EYanska
stjórnin og flugvélaverksmiðj-
urnar hafa ætlað sér að verja
250 milljónum dollcira til að
breyta vængjum vélarinnar og
skrokk og gera hreyflana bet-
ur úr garði rekstrarlega séð.
McDonnell Douglas ætlar að
framkvæma 15% af þessu
verkefni og vinna vélinni
markað vestan hafs, þar sem
Frakkar vonast til að ná fót-
festu. Dassault vinnur 5%
verksins, Aerospitale 40% og
brezk fyrirtæki fá 40%, ef af-
staða brezku stjórnarinnar í
málinu verður eitthvað mild-
ari.
# Markaður fyrir 800
vélar ?
Frakkar sjá fyrir sér markað
fjnir 800 vélar á næsta áatug,
sem kosta myndu um 10 millj-
arða dollara. Keppinautar Mc-
Donnell Douglas í Bandaríkj-
unum draga þó í efa að Mer-
cure sé vélin, sem beðið er eft-
ir. Boeing og Lockheed Air-
craft Corp. efndu til viðræð-
na við Frakka um Mercure-
samstarfið en að þeirra dómi
skorti vélina mikilvæga kosti.
„Það er ekki hægt að gera
þessa vél samkeppnishæfa í
rekstrarútkomu með hæfileg-
um fjárfestingum.“, sagði tals-
maður Lockheed. „Við rann-
sökuðum markaðinn og sáum
að vélin kæmi ekki út sem sig-
urvegari."
Talsmaður Lockheed gaf í
skyn að McDonnell Douglas
væri að sækjast eftir ávinn-
ingi á öðrum sviðum með þátt-
töku í smíði Mercure, eins og
til dæmis sölu á DC-9 og DC-10
vélum sínum til Air France,
sem hingað til hefur verzlað
við Boeing. „Ég myndi leita
eftir slíku væri ég hjá Mc-
Donnell Douglas", sagði mað-
urinn hjá Lockheed.
# Frönsk pólitík —
óskiljanleg
Sérfræðingar um flugvéla-
framleiðslu undrast að Frakk-
ar skuli taka Mercure fram yf-
ir nýja útgáfu af Airbus-300B,
250 sæta vél, sem Frakkar og
Þjóðverjar hafa smíðað sam-
eiginlega. Með því að minnka
hana í 200 sæta vél eins og
Frakkar hafa rætt um við
Boeing og Douglas, væri feng-
in millistærðar vél fyrir milli-
vegalengdir, sem bandarískir
sérfræðingar halda að hafi
mesta markaðsmöguleika á
næsta áratug. Einn af aðstoðar-
forstjórum Boeing hefur sagt,
að málið virðist allt flækt í net
franskrar pólitikur, sem hann
muni aldrei geta skilið.
Embættismaður í franska
samgönguráðuneytinu segir, að
Frakkar vilji einmitt líka
breyta Airbus 300B og minnka,
einnig í samvinnu við Mc-
Donnell Douglas. Þá yrði
bandaríska fyrirtækið í fyrsta
lagi að leggja á hilluna áform
um nýja flugvélategund DC-X-
10, sem átti að keppa við
Boeing 7X7. Frakkar hafa
stungið upp á að DC-X-10 verði
„sameinuð“ Airbus-300B af því
að flugfélög, sem nú eiga þotur
af gerðinini DC-10 myndu lað-
ast til að kaupa þessa nýju
flugvél vegna bandarískrar
hönnunar og tækjabúnaðar.
# Ströng skilyrfti
Boeing
Eins og áður segir höfðu við-
ræður um samvinnu farið fram
milli Frakkanna og Boeing-
verksmiðjanna. Þær strönduðu
á skilyrðum Boeing, sem
Frökkum þóttu óaðgengileg.
Ætlunin var að smíða lengda
gerð af Boeing 737 en í þeirri
samvinnu áttu Frakkar bara
að fá að smíða vængina eins og
hver annar undirverktaki.
Ströng skilyrði Boeing hafa
líka sett strik í reikninginn í
viðræðum þeirra við Japani um
sameiginlega smíði hinnar nýju
Boeing 7X7. Þrír helztu flug-
vélaframleiðendur í Japan,
Mitsubishi, Kawasaki og Fuji
hafa verið tregir til að greiða
175 milljónir dollara, sem Boe-
ing hefur, að sögn sérfræðinga,
krafizt í „aðgangseyri" að verk-
efni þessu á móti sérfræði-
kunnáttu og markaðsstöðu
Boeing. Til viðbótar eiga Jap-
anir að leggja fram 200 millj-
ónir dollara af einum milljarði,
sem áætlað er að smíði vélar-
innar kosti. Þar af leggur jap-
anska stjórnin fram 75%.
Þrátt fyrir skoðanamun er
nú talið nokkuð víst, að samn-
ingar takist með Boeing og
Japönum. Talið er að smíði
Boeing 7X7 geti hafizt á miðju
næsta ári og að vélin verði til-
búin til afhendingar 1982.
Þetta er þotan DC-X-10, tveggja hreyfla, sem McDonnell Douglas
hafa í hyggju að smíða fyrir flugsamgöngur næsta áratugar.
20
FV 9 1976