Frjáls verslun - 01.09.1976, Síða 91
AUGLYSING
Sportver hf.:
KÓRÓIMA - ADAMSON
og LEE COOPER
Sportver hf. heitir fataverk-
smiðjan, sem framleiðir hin
þckktu Kóróna og Adamson
föt. Nú er bar einnig hafin
framleiðsla Lee Cooper sport-
fatnaðar.
Björn Guðmundsson forstjór;
kvað fyrirtækið hafa sýnt fram-
leiðslu sína á ýmsum sýning-
um fyrr en þeim Sportvers-
mönnum hefði verið það sér-
stök ánægja að taka þátt í sýn
ingunni ÍSLENZK FÖT ’76
vegna þess að nú hefði í fyrsta
sinn verið staðið verulega
myndarlega að sýningu á fram-
leiðslu íslensks fataiðnaðar.
Sýningin ÍSLENZK FÖT ’76
var reyndar fyrsta átakið í is-
lenskri iðnkynningu, sem á-
kveðið er að standi í heilt ár,
og hlýtur öllum sem að iðnaði
starfa að vera bæði ljúft og
skylt að stuðla að framgangi
hennar.
Hlutverk slíkra sýninga á ís-
landi er að sýna hvers ís-
lenskur iðnaður væri megnug-
ur. Sýningin þjónaði almenn-
ingi á svipaðan hátt og stór
búðargluggi. Kvaðst Björn vona
að þessi kynning reyndist
áhrifarík þegar fram liðu
stundir.
Sportver hf. lagði áherslu á
að sýna LEE COOPER línuna.
LEE COOPER er langstærsti
aðili á dönskum markaði í
framleiðslu á gallabuxum og
flíkum úr gallabuxnaefnum.
Framleiðslugeta fyrirtækisins
er mikil og má nefna sem
dæmi að 5000 LEE COOPER
gallabuxur ena framleiddar á
degi hverjum í Danmörku.
Sporter hefur einkaleyfi á
framleiðslu LEE COOPER á fs-
landi.
Sportver hf. sýndi að sjálf-
sögðu einnig herraföt enda
hefur framleiðsla þeirra verið
burðarás fyrirtækisins nú á
annan áratug. KÓRÓNA fötin
þekkja flestir íslendingar af
góðri raun og ADAMSON lín-
an var sýnd af mikilli prýði á
tískusýningunni. Hún er eink-
um ætluð ungum mönnum og
selst sérstaklega vel. Sportver
hf. leggur áherslu á að fram-
leiða fct á alla aldursflokka
karlmanna.
Fataverð er nú nálægt kr.
25.000,- og er bá reiknað með
buxum, jakka og vesti. Verðið
fer þó eðlilega eftir því, hvaða
efni eru í fötunum hverju sinni.
Því miður hefur Sportveri hf.
ekki tekist að fá islensk hrá-
efni til vinnsiu i framleiðslu
sína, en von er á að úr því
rætist. Öll efni í fataframleiðsl-
una eru þar af leiðandi erlend,
frá ýmsum aðilum í Evrópu.
Framleiðslustjóri Sportvers
lif., Ásbjörn Björnsson, er son-
ur Björns Guðmundssonar, for-
stjóra. Ásbjörn lærði iðn sina
FV 9 1976
91