Frjáls verslun - 01.03.1978, Qupperneq 45
Páll Guðmundsson rekur eitt af minni fyrirtækjiunum á sviði
auglýsingagerðar. Viðskiptavinir hans eru m. a. Fálkinn og Ferða-
skrifstofan Sunna.
láta bjóða í auglýsingar. Þetta
skapar rugling á markaðnum
þannig að auglýsingar leita oft
þangað þar sem gildi þeirra er
minna,“ sagði Bjarni Grimsson
í Gylmi.
En stafar óánægja auglýs-
ingastofa með þetta ástand þá
ekki einungis af því að þóknun
þeirra verður minni ef birting-
arkostnaður er lægri? Nei,
sögðu þeir, sem spurðir voru.
Auglýsingastofur vinna yfir-
leitt eftir auglýsingaáætlunum,
þannig að ef birtingarkostnað-
ur verður lægri fást fleiri birt-
ingar og þóknunin verður hin
sama.
Hins vegar hafa blöðin tek-
ið þá stefnu að lækka ekki verð-
ið tjl auglýsingastofa. Þetta er
gert í því skyni að fá fyrirtæki
til að ganga framhjá auglýs-
ingastofunum og nýta sér þess
í stað auglýsingaþjónustu blað-
anna frítt. Þannig gætu þau
komist framhjá dýrri vinnu
auglýsingastofu, sem legðist
ofan á birtingarverð.
„Það gerir auglýsingastofun-
um verulega erfitt fyrir að
blöðin bjóða ýmsa þjónustu í
sambandi við gerð auglýsinga,
sem er innifalin í birtingar-
verðinu. En auglýsendur sem
eru með auglýsingar gerðar af
auglýsingastofum fá engan af-
slátt, þó að auglýsingar séu
fullunnar," sagði Gísli B.
Björnsson.
En þessi leið virðist hafa
reynst blöðunum vel og orðið
til þess að sum þeirra a. m. k.
hafa fengið til sín auglýsingar,
sem annars hefðu lent annars
staðar eða þá alls ekki orðið
til. Jafnframt hefur hún kynt
undir köldu stríði milli aug-
lýsingastofa og sumra blað-
anna.
„Mörgum blöðum er hrika-
lega illa við auglýsingasíöfur,“
sagði Bjarni Grímsson, „vegna
þess að það hefur sýnt sig áð
þegar fyrirtæki hefur farið að
skipta við auglýsingastofur þá
hefur stórlega dregið úr dag-
blaðaauglýsingum þess. Blöðin
hafa alltaf átt auðvelt með að
ná auglýsingum beint frá fyrir-
tækjunum, þar til auglýsinga-
stofur og fagfólk kemur inn í
myndina. Þá verða auglýsinga-
birtingar markvissari og við-
skiptin við dagblöðin, nema
Morgunblaðið og Dagblaðið
minnka. Fjármagnið fer þess
meira til sjónvarps, sérrita,
Morgunblaðsins og Dagblaðsins
(sumir auglýsingamenn nefndu
Vísi). Önnur blöð lokast af
nema vegna sérstakra kringum-
stæðna.“
VANTAR
UPPLAGSEFTIRLIT
Svar sumra auglýsingastjóra
blaða er hins vegar það að aug-
lýsingastofur hafi ekki nokkurt
vit á mikilvægi og útbreiðslu
einstakra fjölmiðla. Og víst er
að í samtölum Frjálsrar verzl-
unar við forsvarsmenn helztu
auglýsingastofanna komu fram
mjög mismunandi sjónarmið
varðandi þetta atriði.
„Enginn fjölmiðill er áhrifa-
ríkari en annar og því þarf sam-
spil hinna ýmsu fjölmiðla til
að auglýsingaherferð takist
vel,“ sagði Gísli B. Björnsson.
Hvar auglýst er í hvert skipti
fer eftir því við hvern verið er
að tala. Þar koma inn í þættir
eins og aldur hans, kyn, starf,
búseta o. fl., en leiðarljósið er
að velja bestu og ódýrustu leið-
ina. í sjónvarpi er ágætt að aug-
lýsa, en sjónvarpsauglýsingar
byggjast upp á því að vera
stuttar og laggóðar og oftast
þarf að koma ítarlegri upplýs-
ingum til skila í blaði eða tíma-
riti. í dag er ekki nægilegt að
auglýsa í einu sterku blaði
heldur verður að koma til sam-
spil fleiri blaða og hafa síð-
degisblöðin styrkst mjög að
þessu leyti,“
í svipaðan streng tók Ólafur
Stephensen. „Það hefur sýnt
sig að pláss er fyrir bæði Dag-
blaðið og Vísi. Ég spái því að
þau eigi eftir að byggja upp
hvort sinn karakter, sem á eft-
ir að styrkja þau heldur en
hitt,“ sagði hann.
„Það fer eftir því hvað verið
er að selja hvaða miðill er not-
aður. Sjónvarp og Morgunblað-
ið eru áhrifaríkust. Sérrit hafa
ekki verið eins viðurkenndur
miðill og þau ættu að vera, en
eru sterkur vettvangur til að
ná til þeirra hópa, sem þau
höfða til. Siðdegisblöðin eru
hins vegar léleg og því fæst
lélegur árangur af að auglýsa
í þeim,“ sagði Gunnar Gunnars-
son hjá Auglýsingaþjónustunni.
Þetta lýsir í hnotskurn því
vandamáli sem skortur á upp-
lagseftirliti hefur valdið aug-
lýsingastofunum. Tilraun Verzl-
unarráðs íslands til að koma á
full-komnu upplagseftirliti rann
út í sandinn og nú hafa aug-
lýsingastofurnar tekið sig sam-
an um að fá Hagvang hf. til að
FV 3 1978
45