Frjáls verslun - 01.07.1978, Síða 16
ti! b/adsins...
Hr. ritstjóri,
I 5. tbl. Frjálsrar verzlunar
(bls. 16) er birt grein frá Síldar-
útvegsnefnd varðandi frétt í 4.
tbl. blaðsins („Orðspori") um
tillögu hollenzks fyrirtækis um
framleiðslu á síldartunnum í
Portúgal fyrir íslenzkan mark-
að.
í grein þessari er rætt um
innkaup Síldarútvegsnefndar
(SÚN) á tunnum til landsins og
m. a. gerð að umtalsefni fram-
leiösla og sala hollenzka fyrir-
tækisins (Houtindustrie van
Toor B. V.) sem Hans Eide hf.
hefur einkaumboð fyrir á ís-
landi.
Þó að ætlun okkar sé ekki að
standa í blaðaskrifum við SÚN
varðandi tunnukaup, erum við
nauðbeygðir til að koma á
framfæri leiðréttingum við of-
angreind skrif SÚN, sérstak-
lega varðandi framleiðslu hins
hollenzka fyrirtækis.
í grein SÚN segir m. a. aó
nefndin hafi keypt í nokkur ár
„takmarkað magn" frá verk-
smiðjunni í Hollandi en ,,hætt
þeim viöskiptum vegna ó-
ánægju síldarsaltenda, auk
þess sem ýmsir erlendir síldar-
kaupendur hafa margsinnis til-
kynnt að þeir neiti að taka við
síld ítunnum þessum".
Fullyröing þessi kemur okkur
mjög spánskt fyrir sjónir, auk
þess sem í orðum þessum felst
mjög alvarleg aðfinnsla á fram-
leiðsluvörur hollenska fyrir-
tækisins sem við vísum algjör-
lega á bug.
Fyrirtækið Houtindustrie van
Toor B. V., seldi síldartunnur til
notkunar á íslandi í verulegum
mæli (allt að þriðjung af þörfum
íslendinga) allt þar til síldveiðar
lögöust niöur í byrjun þessa
áratugs. Hollenska fyrirtækinu
er ekki kunnugt um að athuga-
semdir hafi þá borist frá salt-
endum hérlendis eða síldar-
kaupendum erlendis varðandi
síldartunnur framleiddar í verk-
smiðju þeirra í Hollandi:
Þvert á móti liggur fyrir yfir-
lýsing frá þáverandi formanni
Síldarútvegsnefndar þar sem
segir m. a. orðrétt um síldar-
tunnur frá fyrirtækinu Van Toor
í Hollandi:
„Síldartunnur þessar
reyndust vel og höföu
kaupendur síldarinnar í Sví-
þjóð, Finnlandi og víðar
aldrei neitt við gæði og/eða
efni þeirra að athuga."
Því má ennfremur bæta við
að SÚN skrifaði forstjóra hol-
lenska fyrirtækisins bréf í árs-
byrjun 1975, þegar síldveiðar
hófust aftur, þar sem óskað var
eftir tilboði frá fyrirtækinu fyrir
vertíðina sem þá var framund-
an.
Á síðustu síldarvertíð (1977)
gerði Framleiðslueftirlit sjávar-
afurða athugun á tunnum frá
hollenska fyrirtækinu en þá var
saltað hjá Bæjarútgerð Reykja-
víkur (BÚR) í 100 hollenskar
tunnur (úr portúgalskri furu) frá
Houtindustrie van Toor B. V.,
pisamt meö norskum tunnum
(sem nú í nokkur ár hafa ein-
göngu veriö notaðar hérlend-
is).
f áliti Framleiðslueftirlitsins
segir m. a.:
„Ekki var hægt að sjá að
síldin verkaðist verr í hol-
lensku tunnunum en þeim
norsku. Eini munurinn sem
hægt var að greina var sá að
blóðpækillinn var eðlilegri
og með heilbrigðari blæ í
hollensku tunnunum. Það
stafar af því að þær eru
þéttari og halda því betur
pækli."
I sömu athugun framkvæmdi
Rannsóknarstofnun bygging-
ariðnaðarins prófanir á hol-
lensku tunnunum úr portú-
galska efninu, og segir í grein-
argerð Framleiöslueftirlitsins
um þær:
„Hvað prófanir á efniseigin-
leikum viðar og tunna
snertir, svo sem álagspróf-
un tunnustafa í tunnu, fjað-
urstuðulsmælingu tunnu-
efnis og fall-lóðsmælingu
tunnustafa, þá eru niður-
stöður hollensku tunnunum
fremur í hag."
Ennfremur segir í athugun
Framleiðslueftirlitsins:
„Miðað við þá reynslu er
fékkst af hollensku tunnun-
um hjá BÚR og þær athug-
anir er gerðar voru í því
sambandi, sjáum vér ekkert
því til fyrirstöðu aó salta síld
í þær."
Má af því sem hér hefur verið
greint frá vera augljóst að um
er að ræða fyrsta flokks fram-
leiðslu enda er Houtindustrie
van Toor B. V., elsti og stærsti
tunnuframleiðandinn í Hol-
landi, og kröfur þær sem Hol-
lendingar gera til síldartunna
með þeim ströngustu sem
gerðar eru.
Að lokum má geta þess að
með tillögu hollenska fyrirtæk-
isins um aö reisa tunnuverk-
smiðju í Portúgal fyrir íslenskan
markaö er veriö að benda á leið
til aö bæta hina stóralvarlegu
sjálfheldu sem viöskipti okkar
við Portúgala eru nú komin í.
Ef unnt væri að beina inn-
kaupum okkar á síldartunnum
til Portúgals þá væri þar með
unnt að bæta viðskiptastöðu
okkar við þessa stærstu kaup-
endur okkar á saltfiski svo um
munaði, — en verðmæti þeirra
tunna sem notaöar eru hér-
lendis getur numiö nálægt ein-
um milljarði króna á ársgrund-
velli.
Virðingarfyllst,
HANS EIDE HF.
16