Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1978, Side 22

Frjáls verslun - 01.07.1978, Side 22
adutan Holland - hápróað iðnaðarland og miðstöð heimsverzlunar Frjáls verzlun heim- sótti Holland fyrir skömmu og átti þess kost að kynnast á- standi í atvinnu- og efnahagsmálum Hol- lendinga auk þess sem nokkur fyrirtæki voru skoðuð Þeir köliuðu þennan hluta af landareign sinni Niðurlönd, ein- hverjir greifarnir suður í Burgundy í Frakklandi, sem áttu vænan part af Vestur-Evrópu fyrr á öldum. Þá var Holland eins og nokkurs kon- ar útengjar, niðri í flæðarmálinu. Og það má með sanni segja, að Holland standi í fjöruborðinu, því að meir en helmingur landsins lægi undir sjó, ef ekki nyti við flóðgarða, sem hefta innrás sjáv- aröldunnar og óbundna framrás stórfljóta Evrópu, sem þarna líða fram sinn hinzta spöl. Holland er tæpir 34 þúsund fer- kílómetrar eða um einn þriðji af stærð íslands. Og landið stækkar stöðugt, því að enn er verið að endurheimta land frá Ægi kon- ungi. Síðan um aldamót hafa 2400 ferkílómetrar af sjávarbotni verið þurrkaóir uþþ og nytjaðir. Lang- mestur hluti Hollands er ræktað land eða beitilönd fyrir kvikfénað. Ibúafjöldi í Hollandi er tæpar 14 milljónir. Og miðað við stærð landsins búa um 400 manns á hverjum ferkílómetra, sem er hæsta hlutfall í heiminum. Meir en 40% þjóðarinnar búa í tveimur héruöum, Norður- og Suður-Hol- landi, þar sem m. a. er að finna þrjár stærstu borgir landsins; Amsterdam meó 740 þús. íbúa, Rotterdam með 600 þús. íbúa og Haag með tæplega 500 þús. íbúa. Lega landsins Holland liggur á milli Norður- landanna og rómönsku landanna sunnar í álfunni. Leiðin milli Bret- Það eru aðeins um 7% vinnufærra manna í Hollandi, sem starfa við landbúnað og fiskveiðar. Vegna útfærslu fiskveiðitakmarka og kvótaákvæða um veiðar tiltekinna fisktegunda hafa geysileg vandamál skapazt hjá hollenzkum fiskimönnum. Ríkisstjórnin hefur styrkt þá til að selja skip sín úr landi til að koma á betra jafnvægi í fiskveiðimálum. 22

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.