Frjáls verslun - 01.07.1978, Síða 31
prentun og gimsteinaslípun en
gimsteinaiönaðurinn er í nágrenni
Amsterdam og þar er hægt aö fá
gimsteina frá 1/100 karöt upp í
100 karata.
Iðnvæðing á fullri ferð.
Hollendingar gera sér grein fyrir
að efling iðnaðarins er eina raun-
hæfa leiðin til að skapa aukin at-
vinnutækifæri fyrir ört vaxandi
þjóð. Um árabil hafa hollenzk
stjórnvöld því reynt að skapa sem
hagstæðust skilyrði fyrir iðnfyrir-
tækin. Árangurinn kemur meðal
annars fram í því, að síðan 1945
hafa verið stofnsett fjöldamörg ný
iðnfyrirtæki, þar á meðal 972 dótt-
urfyrirtæki erlendra iðnfyrirtækja.
Síöan 1938 hefur framleiösla í
hollenzkum iðnaði aukizt um 590%
og afköst hvers iðnverkamanns
um 226%. Þessi þróun heldur enn
áfram. Miðað við vísitöluna 100
1970 er framleiðslan nú 126 og
framleiðni 147.
Hlutdeild iðnaðarvöru í heildar-
útflutningi Hollendinga er um 83%.
Þessi tala sýnir, að gagnstætt því
sem margir halda, er Holland ekki
fyrst og fremst landbúnaðarland
heldur iðnaðarríki, sem á tilveru
sína mjög undir iðnaðarfram-
leiðslu. Um 38% af þjóðartekjum
Hollendinga koma frá iðnaði, þar á
meöal námaiðnaði og byggingar-
iðnaði, og um þriðjungur allra
vinnandi manna hefur atvinnu sína
af iðnaði.
Launagreiðendur
Kynnið yður
skipan á greiðslu orlofsfjár
Samkvæmt reglugerð nr. 161/1973 ber launagreiðendum
að gera skil á orlofsfé fyrir 10. hvers mánaðar, vegna launa
næsta mánaðar á undan. Greiðslunni skal fylgja skilagrein á
þar til gerðu eyðublaði sem Póstur og sími gefur út.
Gætið þess sérstaklega að nafnnúmer séu rétt.
Launþegar fá reikningsyfirlit á 3ja mánaða fresti frá Pósti og
síma. Það sýnir hve mikið orlofsfé hefur verið móttekið
þeirra vegna.
Geyma þarf launaseðlana til að geta séð hvort rétt upphæð
hefur verið greidd inn á orlofsreikninginn.
Við lok orlofsárs fær launþegi senda ávísun á orlofsfé sitt.
Eyðublöð fást á póststöðum og eru þar veittar nánari
upplýsingar
PÓSTGÍRÓSTOFAN
Ármúla 6,
Reykjavík
Sími 86777.
31