Frjáls verslun - 01.07.1978, Page 32
„Lág fargjöld á Islandi hindra
endurnviun flnnvéla"_______
Rætt við fulltrúa
Fokker-verksmiðj-
anna um viðskipti við
ísland og smíði flug-
véla þeirra, sem hafa
verið mjög eftirsóttar
til flugs á stuttum og
meðallöngum vega-
lengdum
Flugvélaverksmiðjur Fokker-
VFW í Hollandi, sem er eitt af fyr-
irtækjum þýzk-hollenzku sam-
steypunnar VFW-Fokker, hefur
verið eitt þekktasta fyrirtækið í
flugvélaiðnaði í hálfa öld. Núna
nýtur fyrirtækið áberandi sér-
stöðu í flugvélasmíði, því að það
hefur sérhæft sig í framleiðsiu á
farþegaflugvélum fyrir stuttar og
meðallangar flugleiðir.
Hollenzku verksmiðjurnar, sem
stofnsettar voru árið 1919 af
Anthony Fokker, en hann er nú
látinn, höfðu þegar hlotið alþjóð-
lega viðurkenningu á árum fyrri
heimsstyrjaldarinnar. Á þriðja ára-
tugnum og þeim fjórða ávann fyr-
irtækiö sér enn meiri frægð fyrir
allmargar nýjar tegundir flutn-
ingavéla. Fokker-verksmiðjurnar
gegndu ekki síður mikilvægu hlut-
verki í smíði herflugvéla. Þá er vert
að minnast þess, að margar flug-
vélar, sem notaðar voru til fyrstu
flugferða yfir hafsvæði og til
könnunarferöa um afskekkta
heimshluta, voru smíðaðar hjá
Fokker. Þannig var um vélina, sem
Charles Kingsford Smith flaug yfir
Kyrrahafið og var þar með fyrstur
manna til að fara þá leiö í loftinu.
Richard Byrd varð fyrstur til að
fljúga yfir Norðurpólinn. Hann
flaug lika vél frá Fokker. Þaö var
Amelia Erhardt, sem fyrst allra
kvenna stýrði flugvél yfir Atlants-
hafið og það var einnig Fokker.
Árið 1930 voru um 30% alls
flugvélaflota Evrópu, sem notaður
var til almennra flutninga, fram-
leiddur hjá Fokker-verksmiðjunum
í Hollandi.
Fokker Friendship slær í gegn
Snemma á sjötta áratugnum
fengust Fokker-verksmiðjurnar við
smíði á ýmsum gerðum smáflug-
véla en jafnframt var hafizt handa
um hönnun á tveggjahreyfla
skrúfuþotu, F-27, sem þekkt er
undir nafninu Fokker Friendship
og er nú m. a. eitt helzta sam-
göngutækið íförum milli fjarlægari
staða hér innanlands. Markmiðiö
með framleiðslu Fokker F-27 var
aö fylla tómarúm, er skapaðist
þegar aldurinn færðist yfir DC-3
Douglas Dakota og þær voru
smám saman teknar úr notkun.
Þetta hefur vissulega gerzt hér á
landi eins og svo víða annars
staðar úti í heimi.
Rúmum tuttugu árum eftir að
framleiðsla á F-27 hófst, en það
var árið 1957, eru vélar af þessari
Fullgerður búkur af F-27 „í loftlnu“ í samsetnlngarverksmiðjunnl vlð
Schiphol-flugvöll.
32