Frjáls verslun - 01.07.1978, Qupperneq 37
Nútíminn á Schiphol-flugvelli. Nýja flugstöðin og flugturninn íbaksýn.
Flutningaþota af gerðinni Boeing 747, „gleypir í sig“ hvern vörufarm-
inn af öðrum.
Fyrir mörgum áratugum var Schiphol-flugvöllur eln helzta miðstöð
flugsamgangna í Evrópu, sem voru í frumbernsku. Fyrsta áætlunar-
flugið á vegum hollenzka flugfélagsins KLM var farið til London árið
1920. Það var í tvíþekju, oplnni vél, sem hafði sætl fyrir tvo farþega auk
flugmanns.
ákvörðunarstaðar með flugi og bíl
í tengslum við það. Þetta gerist til
dæmis þannig að vörur, sem kom-
ið er í einn sameiginlegan flug-
vélarfarm í Bandaríkjunum til að
lækka flutningskostnaðinn, eru
skildar í sundur á flugvelli í Evrópu
eins og Schiphol. Hluti af sending-
unni getur verið til Hollands. Þær
eru þá teknar frá og sendar með
vöruflutningabíl. Afgangurinn af
sendingunni á að fara til annarra
ákvörðunarstaöa í Evrópu og eru
þær vörur sameinaðar öðrum
sendingum til að mynda heilan
flugvélafarm á einn tiltekinn stað.
Um sumar vörur gildir hins vegar,
að ódýrara er að senda þær lengri
vegalengdir með vöruflutningabíl,
frá Schiphol til Mílanó, svo dæmi
sé tekið. Til þess að geta afgreitt
slíkar sendingar með sem mestum
hraða og öryggi eru nú reknar
tvær meiriháttar vöruflutninga-
miðstöðvar fyrir bíla á Schiphol--
flugvelli. önnur fyrirtæki hafa tekið
að sér að koma vörum alla leiö
heim að dyrum viðtakenda og
sækja jafnframt sendingar til
þeirra, sem síöan fara um Schip-
hol-flugvöll til fjarlægra ákvörðun-
arstaða.
Ný miðstöð fyrir flugfrakt var
tekin í notkun á Schiphol-flugvelli
árið 1967 og er þar vörugeymslu-
rými upp á 18 þús. fermetra og
með níu hæða skrifstofuhúsi enda
hafa 50 flutningafyrirtæki aðsetur
á vellinum. Síöan hafa bætzt við
rúmir 20 þús. fermetrar af
geymsluplássi og sýnir það glöggt
hve ör þessi þróun hefur veriö.
Aukningin í vöruflutningunum
hefur verið 10—12% á ári og mest
ber á flutningum til Bandaríkjanna
og frá þeim og einnig milli Hol-
lands og Austur-Asíulanda. Síö-
ustu árin hafa vöruflutningar í lofti
til Mið-Austurlanda farið mjög
vaxandi og er ástæöan sú, að
sendingar með skipum hafa beðiö
afgreiðslu mánuðum saman þar
syðra vegna lélegrar aðstöðu í
höfnum.
Sjóorusta háð á Schiphol á 16. öld
Flugstöðin á Schiphol-flugvelli
var formlega tekin í notkun árið
1967. Hún hefur sett nútímalegt
svipmót á flugvallarsvæðið og þar
er ys og þys allan sólarhringinn.
Alls hafa 350 fyrirtæki einhverja
starfsemi þar og veita um 24 þús.
manns vinnu. Það eru 54 flugfé-
lög, sem hafa viðkomu á Schip-
hol-flugvelli og tengja Holland
þannig viö 150 borgir í 80 löndum.
Um 140 þús. lendingar og flugtök
fara nú fram á hverju ári á vellin-
um.
Og þess má að lokum geta, að á
flugvallarsvæðinu má sjá glöggt
dæmi þess, hvernig Hollendingar
hafa sótt land í greipar Ægis því að
árið 1573 var háð sjóorusta, þar
sem flugvöllurinn stendur nú. Þar
áttust við skip úr Spánarflota og
skip prinsins af Óraníu. Flugvöllur
hefur veriö starfræktur þarna í 56
ár og var í fyrstu lent á grasi. Árið
1937 var búið að malbika flug-
brautakerfi vallarins og var hann
þá annar fullkomnasti flugvöllur í
Evrópu að þessu leyti. Hinn mal-
bikaði völlurinn var í Stokkhólmi.
37