Frjáls verslun - 01.07.1978, Qupperneq 39
Ylræktarver á íslandi
enn til athununar
Voskamp en Vrijland
framleiðir gróður-
húsasamstæður til
útflutnings og eru
stærstir í þeirri grein
af hollenzkum fyrir-
tækjum
Flesta rekur áreiðanlega minni
til þess að fyrir tveimur árum var í
undirbúningi að setja á stofn yl-
ræktarver til að rækta krys-
anthemumgræðlinga í nágrenni
Reykjavíkur eða annars staðar
sem henta þætti. Áður en hag-
kvæmnishliðin hafði verið fuli-
könnuð upphófst reyndar mikil
barátta Hvergerðinga fyrir því að
fá þennan rekstur enda þótt skii-
yrði öll þættu betri í nágrenni
Reykjavíkur.
Þaö voru hollenzkir aðilar, sem
höfðu áhuga á að taka upp sam-
starf við íslenzkt félag, sem um
þennan rekstur yrði stofnað. Þar
komu m. a. við sögu borgaryfirvöld
í Reykjavík, Flugleiðir og fyrirtækið
Heimilistæki, en það hefur umboð
fyrir Philips-verksmiðjurnar hol-
lenzku, sem meðal annars fram-
leiða lampa til lýsingar í gróður-
húsum. Þessu máli hefur verið
frestað um sinn, þar sem í Ijós kom
að afkoma ylræktarversins hefði
ekki orðið jafngóð og í fyrstu var
talið. En málinu er samt haldið
vakandi.
Það var fyrirtækið Voskamp en
Vrijland í Hollandi, sem ætlaði að
reisa ylræktarverið, en þetta fyrir-
tæki hefur mikla reynzlu við gerð
gróðurhúsa og hefur fengið verk-
efni víöa um heim.
Afhenda fullgerð gróðurhús með
öllum búnaði
Voskamp en Vrijland er rúmlega
Ylræktarver, sem Voskamp en Vrljland hefur reist í Hollandi. Gróður-
húsin eru geysistór og sjálfvirkur búnaður stjórnar hita og vökvun.
25 ára gamalt fyrirtæki. Fyrir stríö-
ið var efni til gróðurhúsagerðar
fengið sitt úr hverri áttinni, en að
ófriðnum loknum átti sérstað mikil
endurnýjun, sem Voskamp en
Vrijland tók þátt í. Þeir Vrijland,
sem var trésmiður, og sölumaður-
inn Voskamp, höfðu þá stofnsett
39