Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1978, Page 50

Frjáls verslun - 01.07.1978, Page 50
Bolslíkjör úr margbreyti- lenum hráetnum__________ Öbreyttur verkamaöur í Amster- dam, Lucas Bols aö nafni, tók þá ákvöröun 1575 aö reyna nú sjálfur aö hefja eigin atvinnurekstur. Hann vann þá hjá líkjöraframleið-, anda í Amsterdam, og ákvað að reyna fyrir sér í þeirri grein. „Aemstelredam" eins og borgin hét þá, var þegar á þessum tíma orðin mikil verzlunar- og iönaðar- borg og Lucas Bols taldi framtíð- arskilyrði sín í borginni hin beztu. Við fábrotnar aðstæður byrjaði Lucas Bols að búa til líkjöra, sem boriö hafa hróður hans um víða veröld. Því til viðbótar hóf Lucas að vinna maltvín úr byggi, rúgi og maís. Og með því að eima þetta vín meö berjum fékk hann gintegund, nefnda sjenever, sem þótti ó- brigðult meðal gegn margs konar krankleika. Með árum og öldum sem liðið hafa síðan Lucas Bols hóf at- vinnurekstur sinn, hefur Bols fyrir- tækið sett á fót verksmiðjur víða erlendis, en samvinna hefur líka verið tekin upþ við erlendar verk- smiðjur um framleiðslu á Bols vör- um fyrir viðkomandi markaðs- svæði. Þannig eru Bols tegundir framleiddar, eða settar á flöskur í 29 löndum. Upphaflega var vínandi eimaður úr léttvínum, en talið er að seint á 14. öld hafi menn uppgötvað, að vínanda mátti fá úr korni, og í Hol- landi var kornið auðfengnara og ódýrara að sjálfsögðu en vínber. Því upphófst mikil samkeppni þeirra sem eimuöu úr korni, og hinna sem fluttu inn áfengi frá Frakklandi. Lucas Bols hafði byrjað að laga líkjöra seint á 16. öldinni. Upp- skriftum var haldið leyndum og gengu þær mann fram af manni, frá föður til sonar. Um leið og hollenzk kaupför sigldu stöðugt lengra út á heims- höfin til fjarlægustu landa og komu heim með nýjar tegundir krydds, hýðis og ávaxta, gátu af- komendur Lucas Bols vandað æ meira til líkjöranna sinna, og gert þá bragðbetri. Á ferðum sínum höfðu hol- lenzkir sæfarendur sjenever og líkjör um borð til hressingar og til lækningar. Þannig urðu þessar vörur þekktar um heim allan. Hráefnin í líkjörana eru mjög margbreytileg, grös, fræ, hýði eða ávextir. Færir líkjörsbruggarar geta endalaust boðið upp á nýtt bragð, ilm eða lit. Hráefnin eru ræktuð á Spáni, í írak, í Vestur-- Indíum eða í Mið-Evrópu. Til eru líkjörar, sem eru samsettir úr 30 mismunandi tegundum hráefna. Þess má að lokum geta, að ný- lega er hafin sala hjá Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins á nýrri sjenevertegund frá Bols, sem nefnist Jonge. Þessi sjenever er ekki nema 35% að styrkleika og hefur hann notiö mikilla vinsælda hjá ungu fólki í Hollandi, sem fremur kýs að nota hann í blöndu með gosdrykkjum, en sterkari teg- undir eins og vodka. 50

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.