Frjáls verslun - 01.07.1978, Qupperneq 65
Grundarfjörður heppilegur
fyrir fiskimiölsverksmiðiuna
— segir Árni Emils-
son, sveitarstjóri í
Grundarfirði
„Frá fornu fari er samband
okkar fyrst og fremst við Stykkis-
hólm þrátt fyrir að styttra sé að
sækja til Ólafsvíkur. Þetta á fyrst
og fremst rót sína að rekja til þess
að tiltölulega stutt er síðan vega-
samband komst á fyrir Búlands-
höfða til Ólafsvíkur. Þess vegna
voru samskipti okkar áður fyrr
nær því öll við Stykkishólm,"
sagði Árni Emilsson, sveitarstjóri
í Grundarfirði, er Frjáls verzlun
ræddi við hann fyrir skömmu.
„Þetta samband er margvíslegt,
bæöi í menningarlegu tilliti og at-
vinnulegu. Viö fáum hingaö iön-
aðarmenn úr Hólminum, járnsmiöi
og aðra. Þangað sækjum viö
einnig læknisþjónustu. Hingað
kemur læknir þrisvar í viku og er-
um við nokkuð sáttir við það.
Atvinna hér er öll við fisk og aftur
fisk. Hér eru eitthvaö um 4 stöövar
og öll atvinna hér snýst í kringum
þetta. Okkur þykir nauðsynlegt að
efla atvinnulífið hér á einhvern hátt
og til dæmis viljum viö, eins og
aðrir hér á Nesinu, fá fiskimjöls-
verksmiðjuna, sem svo mjög hefur
verið talaö um. Rætt hefur verið
um það að aðeins ein fiskimjöls-
verksmiðja veröi á Snæfellsnesi
og teljum við Grundarfjörö heppi-
legasta staðinn fyrir slíkt fyrirtæki.
Þeir í Hólminum hafa gefið okkur
þetta eftir og vilja standa að upp-
byggingu verksmiöjunnar hér, en
Ólafsvíkingar vilja gjarnan fá
þessa verksmiðju líka og það er
mál, sem úr verður aö leysa. Við
teljum Grundarfjörð hafa það
framyfir Ólafsvík í þessu máli aö
hér er hafnaraðstaða miklu betri
en í Ólafsvík. Þar geta djúpsigld
skip ekki komist inn, en hér geta
skip af öllum stærðum rennt að.
Það er sem sagt fyrst og fremst
sjórinn sem við byggjum okkar at-
vinnu á hér á Grundarfirði. Iðnað-
ur getur ekki talist hér nema í
sáralitlum mæli og hér er enginn
fíniðnaður.
Fólksfjölgun hefur orðið hér
töluverð og því hefur sveitarfélag-
ið reynt að leysa úr húsnæðis-
skorti með byggingu leiguíbúða. í
svipinn erum við með átta slíkar í
takinu.
Vöruhúsið HÓLMKJÖU HF.
StyhkishnÍMni — sitnar 03-8304 8308
KAUMHMt:
\llttv islnnshar afuröir
SMJMAMt:
tinrnrörur. — iXtjlentÍMrörur.
Uefnaðarrörttr. — littsaltöltl.
Fatnað. —Mtiíföntj.
— Síttlurft ústtrvksíur -
— KJÖT- OG FISKBÚÐ —
65