Frjáls verslun - 01.07.1978, Side 76
L
1
SMÍÐUM:
Hurðir, glugga,
húsgögn og allar
gerðir innrétt-
inga.
Önnumst alls konar
byggingafram-
kvæmdir og
viðgerðir.
Framleiðum
einingarhús
úr timbri.
að koma hér inn í, þar sem þessi
vinnsla, ef úr verður, kemur til með
að fjölga atvinnutækifærum veru-
lega. Unglingar héðan hafa orðið
að leita mikið burtu á sumrin eftir
vinnu og ekki er það til að auka
líkur á að þeir festi hér rætur.
Einnig mun þetta veita fjölmörgum
húsmæðrum kost á hálfs dags eöa
heils dags vinnu, eftir því sem þær
óska, nokkuð sem ekki hefur verið
fyrir hendi hér.“
Svo við snúum okkur frá at-
vinnumálunum og að öðrum vel-
ferðarmálum staðarins. Hvernig
eruð þið settir með skólamál og
læknisþjónustu?
,,Við höfum hér grunnskóla, þar
sem börn eru frá 7—12 ára aldurs,
en þeir sem eldri eru fara síðan að
Laugum í Hvammsfirði og Ijúka
grunnskólanáminu. Alla aðra
menntun verða nemendur að
sækja út fyrir héraðið. Hvað varðar
læknisþjónustuna, þá teljum við
hana í góðu lagi. Við erum á næstu
vikum að opna heilsugæzlustöð,
sem verið hefur í smíöum. Hér
starfa reglulega tveir fastir læknar,
en á þessari stöð verður síöan aö-
staða fyrir sérfræðinga og lækna,
sem koma annars staðar að. Þessi
mál eru í mun betra standi en var til
dæmis fyrir 6—8 árum, þegar
hingað kom læknir einu sinni í
viku.“
Með vörur
af ýmsu tagi
— en reynir aö vera
ekki í beinni sam-
keppni við kaupfélag-
ið
Þegar ekið er inn í kauþtúnið í
Búðardal verður fyrst fyrir grænt
hús, þar sem er verzlun Einars
Stefánssonar. Blaðamaöur
Frjálsrar verzlunar átti tal við
verzlunarstjórann, frú Ásu
Stefánsdóttur.
Hún kvað verzlunina vera stofn-
aða árið 1965, og þá í uþþhafi sem
raftækjaverzlun. Fljótlega hafi
komið í Ijós að ekki var grundvöllur
fyrir slíkri sérverzlun á ekki stærri
og mannfleiri staö en Búðardal.
Ástæðan fyrir að verzlunin fékkst
einungis við vörur á þessu af-
markaöa sviði var að eigandinn,
Einar Stefánsson, maður Ásu,
varð um þetta leyti rafvirkjameist-
ari og öðlaðist þar með rétt til að
setja upp verzlun af þessu tagi. (
uþphafi fékkst verzlunarleyfið ekki
útvíkkað og því var oft hart í ári til
að byrja með. Síðar breyttust við-
horf ráðamanna og verzlun Einars
Stefánssonar hefur nú á boðstól-
um vörur af ýmsu tagi, sem ætla
má að fólk á stað eins og Búðardal
hafi not fyrir. „Við reynun," sagði
verzlunarstjórinn, Ása Stefáns-
dóttir, ,,að vera með aöra vöru-
flokka en kaupfélagsbúðin hér á
staðnum og koma sem minnst inn
á þeirra svið, en þeir hafa óneit-
anlega verið að koma nokkuö inn
á okkar plan, hvað vöruframboð
snertir."
Við spurðum Ásu um hvernig
grundvöllur væri fyrir rekstri slíkrar
verzlunar á staðnum. ,,( raun og
veru er vart grundvöllur fyrir þess-
ari verzlun. Hún gerir vart meira en
borga einni manneskju kauþ. Hins
vegar leggur maðurinn minn enn
stund á sína iðn og af því lifir fjöl-
skyldan."
76