Frjáls verslun - 01.08.1978, Síða 56
Vélarnar hjá Ora geta lokað
3—4000 dósum á klst.
Framleiðslutegundir
Ora nú orðnar um 20.
I' fyrra var soðið niður
11/2 milljón dósa.
Hver hefur ekki haft Ora fiski-
bollur og búðinga, grænar baunir
og gulrætur, rauðkái eða maís á
borðum einhvern tíma? Það hafa
áreiðanlega flestir haft, enda Ora
framleiðsluvörurnar vel þekktar á
íslenzkum heimilum. En ætli allir
viti, að ef framleitt er með fullum
afköstum, geta vélar skilað
40—50 þúsund dósum á dag og
nýjar vélar, sem fyrirtækið á geta
lokað allt að 3—4000 dósum á
klukkustund með fullum afköst-
um?
Frjáls verzlun fór í heimsókn í
Ora verksmiðjuna, þar sem hún
stendur á fallegum stað á
Kársnesbrautinni alveg niður við
Fossvoginn inn af Skerjafiröinum.
Forstjóri Ora er T ryggvi Jónsson
og við hann spjallaði F. V. um
fyrirtækið. Hann sagði, að Ora,
sem raunar þýðir strönd á latínu,
hefði veriö stofnaö árið 1951 af
Tryggva, Arnljóti Guðmundssyni
og Magnúsi Brynjólfssyni, en þeir
síöasttöldu eru nú báðir látnir.
Upphafið var það, að Tryggvi
ásamt Arnljóti hafði stofnað fyrir-
tækið Kjöt og rengi, 1950, og seldu
þeir súrsað hvalrengi og nýtt og
hraðfryst kjöt. Árið eftir var Ora
stofnað með það fyrir augum að
framleiða og seija ýmsa niður-
suðuvöru.
Fiskbúðingurinn fyrsta fram-
leiðsluvaran.
Fyrsta framleiðsluvaran var fisk-
búðingurinn, en fljótlega eftir það
hófst niðursuða á murtu, síðan
bættust fiskibollurnar við, og svo
grænmetistegundirnar hver af
annarri.
Þegar Ora hóf starfsemi sína var
fyrirtækið til húsa í 250 m2 hús-
næöi í Kópavoginum, en þar í bæ
hefur fyrirtækið alltaf verið starf-
rækt, en nú eru 4000 m2 undir
starfsemina. Milli 50 og 70 manns
hafa þar atvinnu, og nú eru fram-
leiðslutegundirnar orðnar um þaö
bil tuttugu. Eru það ýmsar græn-
metistegundir, fiskibollur, fiskbúð-
ingar, murta, sem að mestu hefur
verið seld erlendis, kavíar, þorsk-
hrogn, lifrarkæfa og kryddsíldar-
flök, en nýjustu grænmetisteg-
undirnar sem Ora hefur soðið
niður eru maís, sem kom á
markaðinn í fyrra og bakaðar
baunir.
Nægt framboð á íslenzku hráefni.
Hráefni sem flytja þarf inn er að
mestu frá Bandaríkjunum, en hrá-
56