Frjáls verslun - 01.10.1978, Side 8
afangar
Ófeigur Hjaltested var í október ráðinn í
stöðu markaðsstjóra hjá Iðnaðardeild Sam-
bands íslenzkra samvinnufélaga með aðsetri í
Reykjavík.
Þar meó flyzt sú sölustarfsemi deildarinnar,
sem verið hefur á Akureyri, til Reykjavíkur, og
mun Ófeigur hafa með aö gera stjórn allra
sölumála deildarinnar, bæði innanlands og ut-
an.
Hefur Ófeigur yfirumsjón með öllum mark-
aös- og sölumálum iðnaðardeildar, en undir
hana heyra 13 fyrirtæki Sambandsins, sem eru
á Akureyri, Sauðárkróki, Borgarnesi, Egils-
stöðum og í Reykjavík.
Innan markaðsdeildar starfa síðan markaðs-
fulltrúar, aö sögn Ófeigs, og hver markaðsfull-
trúi hefur sitt ábyrgðarsviö. Einn hefur með
markaðs- og sölumál Ullarverksmiðjunnar
Gefjunar að gera, annar skinnastofur Sam-
bandsins og sá þriöji um Austur-Evrópuvið-
skipti svo dæmi séu tekin, en undir markaðs-
stjóra heyra síöan sölumenn.
Ófeigur Hjaltested er fæddur í Reykjavík 3.
maí 1949. Hann varð stúdent frá Verzlunar-
skóla íslands 1970 og lauk prófi í viðskipta-
fræðum frá Háskóla l'slands 1974.
Stundaði hann nám, að því loknu, árin
1974—1976 við University of Minnesota, í
Bandaríkjunum, og lauk þaðan masters prófi í
rekstrarhagfræöi.
Síðan hefur hann starfað hjá iðnaðardeild
Sambandsins í Reykjavík, fyrst sem skrifstofu-
stjóri, og síðar fulltrúi framkvæmdastjóra
deildarinnar í Reykjavík, þar til hann tók viö
stöóu markaðsstjóra í október s. I.
Francois Desbans, er nýr sendiherra Frakk-
lands á (slandi, en hann tók viö embættinu í lok
júlí í sumar. Francois Desbans er sjötti sendi-
herra Frakklands á (slandi, arftaki Jacques
Pradelles de Latour Dejean, sem var sendi-
herra hér í fimm ár.
Frakkar opnuöu sendiráð hér á landi á árinu
1956, en fyrsti sendiherrann var Voillery.
Francois Desbans er fæddur 23. september
árið 1919 í Le Mans. Hann lauk prófi frá laga-
deild Parísarháskóla, og hefur jafnframt há-
skólapróf í sögu. Einnig lagöi hann stund á nám
við franska stjórnunarskólann.
Eftir að hafa starfað í utanríkisráðuneytinu í
París, varð Francois Desbans fulltrúi frönsku
stjórnarinnar í Saigon, Washington og í
Moskvu.
Hann starfaði ennfremur í ráðuneyti De
Gaulle, hershöfðingja í Elysée höll á árunum frá
1964-1967.
Francois Desbans var skipaður sendiherra
Frakklands í Albaníu, og þar starfaði hann á
árunum frá 1974—1977.
Eiginkona sendiherrans er Francoise Farbos
de Luzan og eru börn þeirra fjögur.
Sendiráð Frakka hér á landi, þ. e. skrifstofur
eru á Túngötu 22 í Reykjavík, en ennfremur er
sérstök verzlunardeild í Austurstræti 6, sem
fæst við ýmis verkefni á viðskiptasviðinu, en
sendiherrabústaðurinn er á Skálholtsstíg 6.
* +
8