Frjáls verslun - 01.03.1979, Blaðsíða 15
\
Svo er að sjá af þeim upplýsing-
um, sem fyrir liggja um markaðinn
vestra, að lceland Seafood Cor-
poration hafi aukið sölu sína
nokkru meira en sem nemur heild-
araukningunni á markaðnum. Ef
miðað er einungis við fiskréttasölu
fyrirtækisins, þá jókst hún um 13% í
magni 1978 frá árinu á undan. Upp-
lýsingar um heildarsölu á fiskrétt-
um í Bandaríkjunum á öllu s.l. ári
liggja ekki enn fyrir, en á fyrra
helmingi ársins er talið að salan í
magni hafi aukizt um 7%. Skv. upp-
lýsingum frá Guðjóni B. Ólafssyni'
frkvstj. má telja, að aukningin hjá
lceland Seafood Corporation sé
nokkru meiri en á markaðnum al-
mennt.
Þá er einnig greinilegt, að
Bandaríkjamenn eru að auka
neyzlu sína á frystum sjávarafurð-
um. Fyrstu níu mánuði síðasta árs
er neyzlan á frystum fiskflökum tal-
in hafa aukizt um 10,4% og neyzlan
á frystum fiskblokkum um 8,7%.
Þetta er aftur talin ástæða þess, að
innflutningur þeirra á þessum af-
urðum jókst á sama tímabili, á flök-
um um 8,1% og blokk um 7,0%.
Ráðstöfunarfé
lífeyrissjóðanna
Ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna í
landinu er áætlað 26,8 milljarðar kr.
á árinu 1979. Er um að ræða um
42% aukningu frá síðasta ári. Sam-
kvæmt fyrstu spá var ráðstöfunarfé
sjóðanna áætlað 17 milljarðar kr. á
árinu 1978, en niðurstaðan mun
liggja nærri 19 milljörðum kr.
Ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna
er skilgreint sem innborguð iðgjöld,
vextir og afborganir af skuldabréf-
um, að frádregnum lífeyrisgreiðsl-
um og kostnaði við rekstur sjóð-
anna.
Á árinu 1978 keyptu lífeyrissjóð-
irnir verðtryggð skuldabréf fjárfest-
ingalánasjóða fyrir 6.079 millj. kr.,
miðað við 3.091 millj. kr. á árinu
1977. Aukningin nemur 96.7%.
Samkvæmt lánsfjáráætlun 1978 var
gert ráð fyrir að lífeyrissjóðirnir
keyptu verðtryggð bréf fjárfest-
ingalánasjóða fyrir 5.835 millj. kr.,
svo Ijóst er að lífeyrissjóðirnir hafa
varið hærri fjárhæðum til verð-
bréfakaupa að þessu sinni. Nema
kaupin um 32% af ráðstöfunarfé
lífeyrissjóðanna. Nú sem fyrr hafa
lífeyrissjóðirnir keypt meira af
Byggingarsjóði ríkisins, en ráð var
fyrir gert í upphaflegri lánsfjáráælt-
un.
RENTUN.U
Kprentun
DAGSETNJK&. VERÐj
GUÐHUNDUR , S, 3f- 64D
SIDASTI soiuocub|kr/KG. | ÞVNGD. | VERÐ.
SMEINN, 5 37-Í2DD
PQKKUMARDanUR
aroadui. s ■ 32-!58ir**^
NONNl & BUBBl
KYNIMIÐ YÐUR
VERÐ OG GÆÐI
ímn-M
Þegar við VEGUM kostina,
þá veröur svarió
ISHIDA
GÖÐPRVÖRIJH
AGÖQUVERBI
@ KAUPFÉLAG HÉRAÐSBÚA @
REYKIÐJAN hf.
NMHMUVTCI 3b * 7*J«0
SPYRJIÐ ÞESSA
* TRYGGIÐ YÐUR VOG MEÐ NÆSTU
SENDINGU
* STAÐFESTIÐ PANTANIR OG
í£S8265S NilSl.OS lll QlliSÞ oauss
PLASTPOKAVERKSMIÐJA ODDS SIGURÐSSONAR GRENSÁSVEGI 7 REYKJAVÍK
BYGGINGAPL&ST ♦ PLASTPRENTUN * MERKIMIÐAR OG VÉLAR
TRIXPLAST HEIMILSPQKAR 50STK. Á RULLU