Frjáls verslun - 01.03.1979, Side 26
er allt að 95% frauðsins loft þannig
að rúmtakið gerir það að verkum
að flutningskostnaður er mjög
mikill. Polystyrol frauðplastið er
framleitt í mismunandi rúmþyngd-
um, yfirleitt á bilinu 16—30 kg/
rúmm. sumar verksmiðjurnar
framleiða einnig einangrunar-
hólka fyrir vatnslagnir úr polystyrol
plasti og einnig þéttilista undir
bárujárnsklæðningu.
Einangrun úr polyurethane--
plasti mun vera framleidd af
a.m.k. 4 fyrirtækjum, þ.á m. Berki
hf. í Hafnarfirði og Úretan hf. í
Reykjavík og á Selfossi mun vera
að fara af stað fyrirtæki sem mun
framleiða röraeinangrun úr poly-
urethane frauði.
Elst og stærst þeirra fyrirtækja
sem framleiða polyurethane ein-
angrun er Börkur hf. í Hafnarfirði.
Fyrirtækið var stofnað árið 1964
og hefur aðallega verið í fram-
leiðslu á röraeinangrun fyrir veitu-
kerfi hitaveitna, sérstakri einangr-
un fyrir frysti- og kæliklefa og
einangrunarpanel. Polyurethane
einangrun hefur mesta einangr-
unargildi þeirra frauðefna sem eru
á markaðnum, efnið þolir tölu-
verðan hita og er laust við vatns-
drægni auk þess sem það er raka-
helt. Þótt polyurethane sé fyrst og
fremst notað í einangrunarfram-
leiðslu hérlendis er rétt að geta
þess að notkunarsvið þess er mjög
vítt og á því má byggja mjög fjöl-
breytta framleiðslu sem á eflaust
eftir að vaxa fiskur um hrygg hér á
landi.
Framleiðsla einangrunarplasts
hefur aukizt að magni til um tæp
79% á síðustu 10 árum fram til
áramóta 1978, úr 25,3 þúsund
rúmmetrum í 45,2 þúsund rúm-
metra samkvæmt tölum Hagstof-
unnar. Frá árinu 1972 t.o.m. 1977
hefur fyrirtækjum sem framleiða
plasteinangrun fjölgað úr 15 í 18 á
landinu. Framleiðsla á einangrun-
arrörum fyrir hitaveitur, þ.e. poly-
urethane, jókst um tæp 196% á 5
árum 1972—1976 og er þá átt við
magnaukningu.
Plastumbúðir og
filmuframleiðsla
Framleiðsla plastumbúða er vax-
andi iðnaöur. Þegar litið er á um-
búðaframleiðslu má í aðalatriðum
skipta henni í tvo meginþætti,
annarsvegar plastílát af öllum
stærðum og gerðum fyrir ýmsar
neyzluvörur og hinsvegar plast-
filmu- og plastpokaframleiðslu.
Plastílát eru framleidd af a.m.k. 3
fyrirtækjum sem nota margar mis-
munandi plasttegundir. ílátin eru
framleidd með ýmsum aðferðum,
t.d. formblæstri, þrýstimótun og
einnig meö svokallaöri hverfi-
steypu (Rotational moulding). Eitt
þeirra fyrirtækja sem hvað lengst
hefur framleitt plastílát er Sigur-
plast hf. í Reykjavík. Knud Kaaber
framkvæmdastjóri kvað fram-
leiðsluna vera í stööugum og jöfn-
um vexti, en fyrirtækið hefur fram-
leitt dósir, flöskur, brúsa, glös o.fl.
úr plasti síðan 1960 og starfsfólk
er nú 22. Sigurplast prentar einnig
á plastílátin. Sæplast hf. í Reykja-
vík er stofnað árið 1973. Það fyrir-
tæki er nú að framleiða fyrstu fisk-
kassana fyrir skuttogarana, en sú
framleiðsla hefur verið að þróast
hjá fyrirtækinu að undanförnu.
Fiskkassarnir eru framleiddir með
hverfisteypuaðferð og eru að
formi til samkvæmt norskum staðli
eins og þeir fiskkassar sem eru í
notkun í landinu. Guðmundur
Þormóðsson framkvæmdastjóri
sagöist áætla að markaðurinn fyrir
fiskkassa gæti orðið verulegur og
benti á, í því sambandi, að á síð-
asta ári hefðu verið fluttir inn fisk-
kassar fyrir um 400 milljónir og að
langmestu leyti frá Noregi. Sæ-
plast framleiðir einnig vörubretti úr
plasti fyrir fiskkassa, vörupalla fyrir
vöruskemmur og flutningaaðila.
Þá er fyrirtækið einnig með sér-
stök einangruð ker sem eru sér-
staklega framleidd með það fyrir
augum að notast við sjókælingu á
fiski um borð í skipum. Sæplast
hefur fjárfest fyrir um 50 milljónir í
framleiðslutækjum, en með þeim
veröa fiskkassarnir framleiddir og
ýmsar aðrar vörur.
í filmuframleiðslu er Reykja-
lundur brautryðjandinn hérlendis.
Reykjalundur hefur um langf skeið framleitt polyethene-vatnsrör, sem notuð hafa verið um allt land.