Frjáls verslun - 01.03.1979, Síða 45
skattakerfisins hvetur fyrirtæki til þess aö tylgjast með
tækninýjungum og endurnýja, þá ekki síst í þunga-
iðnaðinum, og hefur þannig áhrif á allt efnahagslífið.
I deilum um skattamál skiptast fyrirtækin nokkuö í
tvennt, stórfyrirtækin og þau minni. Því er ekki að
leyna að óskum stærri fyrirtækjanna hefur veriö sinnt
betur en þeirra minni. En þrátt fyrir það að skatta-
stefna stjórnvalda sé þannig nokkuð í hag stóru fyrir-
tækjunum njóta smærri fyrirtækin aðstoðar ákveð-
inna bankastofnana. Á hverju ári er úthlutað fjár-
magni úr sérstökum sjóðum sem fjármagnaðir eru af
þeim sem betur eru staddir og ætlaðir eru þeim sem
skortir fé. ( raun miðar þessi stefna að því megin-
markmiði að stuðla að jafnvægi í lífskjörum milli hinna
ýmsu landshluta.
Sérhæfni og verkaskipting.
Japönsk fyrirtæki eru hvött til þess aö sérhæfast á
ákveðnu sviði. Þaö auðveldar stjórnvöldum eftirlit
með fyrirtækjunum og framleiðslu þeirra. En þrátt
fyrir þetta eru tengsl, mismunandi mikil þó, milli fyrir-
tækja á ólíkum sviðum. Þau fyrirtæki sem hafa með
sér hvað nánast samstarf eru „samsteypur" eða
„grúppur" eins og Mitsubishi, Mitsui og Sumitomo,
sem eiga sögu slíks samstarfs allt frá því fyrir seinna
stríð. En aðrar samsteypur, eins og Fuji, Samwa og
Daiichi hafa sameinast á síðari árum.
Hver samsteypa samanstendur af tiltölulega full-
komnu safni fyrirtækja í öllum greinum verslunar og
iðnaðar. Þetta tryggir viðkomandi fyrirtækjum meira
öryggi þar sem samsteypan getur aöstoðaö og styrkt
hvert fyrirtæki og leitt það fyrr inn á braut framfara og
tækni en því annars væri mögulegt. Þróunin hefur
orðið sú að innan hverrar greinar keppa tiltölulega fá
fyrirtæki sem hvert tilheyrir mismunandi samsteypum.
Hvergrein (stáliðnaður, rafmagnstækjaframleiðsla,
bílaiðnaður o.s.frv.) samanstendur af nokkrum sölu-
samtökum. Stærstu fyrirtækin hafa sjálf sín eigin
sölusamtök en önnur eru mynduð af mörgum smærri
fyrirtækjum.
Keidanren er sem fyrr sagði skipt niður eftir grein-
um og hefur hver grein samsvarandi deild innan
samtakanna. Á sama hátt eru samtökum atvinnurek-
enda sem fjalla um verkalýösmál (Nikkeiren) skipt
eftir greinum.
Deildaskiptingin innan Keidanren veldur því aö
æðstu menn þar ræöa viö samsvarandi hóp embætt-
ismanna ríkisvaldsiris, t.d. innan MITI og til hverrar
deildar Keidanren svarar samsvarandi deild innan
MITI. Tilgangur MITI deildarinnar er að örva og hafa
áhrif á þróunina innan sinnar greinar. Raunar má
segja að verkefni hinna æðri embættismanna MITI sé
aö samhæfa og halda í jafnvægi oft mismunandi
áhuga deildanna, sem hver um sig reynir að auka veg
sinnar greinar. í þeim tilgangi að ná þessum mark-
miðum er haldið uppi mikilli upplýsingaöflun
hvaðanæva úr heiminum um framtíðarmöguleika
hverrar greinar fyrir sig, upplýsingastreymið er stöð-
ugt milli deilda og rannsóknum er haldið uppi um
ýmsa þá þætti sem hinum einstöku fyrirtækjum myndi
reynast of dýrt og óhagkvæmt aö halda uppi á eigin
spýtur og hvert um sig.
Til þess að halda fyrirtækjunum samkeppnishæfum
á erlendum mörkuöum setur MITI háar kröfur um sí-
fellda enduruppbyggingu í fyrirtækjunum. Stundum
veidur þetta reiði hinna minni sem ekki geta alltaf
fullnægt þessum kröfum. Á hinn bóginn veldur þaö
reiði stærri fyrirtækjanna þegar smærri fyrirtækin eru
aðstoöuö og styrkt, eins og raunin varö á þegar MITI
hvatti til samstarfs smærri olíufyrirtækja með stofnun
Kyodo Oil til aö gera þau samkeppnisfærari viö stærri
olíufélögin.
Hlutverk verkalýðsfélaga.
Verkalýðsfélögin starfa innan fyrirtækjanna fremur
en eftir ákveðnum greinum. Það er því eitt verkalýðs-
félag á hverjum vinnustað. Verkföll eru mjög fátíð og
43